SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Von Efstaleiti

Von, hús SÁÁ í Efstaleiti 7

Markmið með byggingu Vonar var öðrum þræði að auka þjónustu vegna ört vaxandi vanda sem hefur skapast vegna vímuefnaneyslu ungs fólks og dagdrykkju hinna eldri. Starfseminni er ætlað að styðja aðstandendur áfengis- og vímuefnaneytenda, vinna að forvörnum meðal neytenda og áhættuhópa og veita þeim sem farið hafa í meðferð nauðsynlegan stuðning og ráðgjöf meðan þeir eru að auka félagslega færni sína svo þeir geta staðið á eigin fótum.

Á hinn bóginn var nauðsynlegt að byggja yfir hina miklu starfsemi SÁÁ sem unnin er á vegum félagsins og þá sem tengist rekstri.

 

Úrræði í Göngudeild (pdf skjal) 

Fastir fundir og viðburðir í Efstaleiti (pdf skjal)

 

Í stuttu máli er starfsemi í Von í Efstaleiti 7 eftirfarandi:

  • Göngudeild, árlega um 25.000 komur
  • Rannsóknarstarf
  • Félags- og útbreiðslustarf SÁÁ: Um 900 manns sækja mánaðarlega viðburði á vegum SÁÁ og þar fer fram mikilvæg fjáröflun vegna sjúkrahússrekstrar
  • Skrifstofur og rekstur: Hjá SÁÁ starfa um 100 manns á 6 starfsstöðvum í Reykjavík, Akureyri og á Staðarfelli
  • Forvarnir: SÁÁ hefur opnað forvarnadeild sem þjónar höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni
  • AA og AL-Anon fundir: Nokkrar deildir hafa þegar fengið fasta fundi og aðrar eru á leiðinni
  • Útleiga: Lausum tíma er ráðstafað til tónlistarmanna og ýmissa viðburða

Göngudeild

Göngudeildarstarf SÁÁ er gríðarmikið og tekur bæði til alkóhólista, aðstandenda, forvarna, spilafíkla og greiningarviðtala. Í göngudeildina í Reykjavík eru um 25.000 komur árlega, en í göngudeild á Akureyri eru um 7000 komur. Því eru samanlagt um 32.000 komur í göngudeildir SÁÁ árlega.

 

SÁÁ hefur byggt upp alhliða meðferðarþjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandendur þeirra sem býður upp á marga valkosti. Sjúkrastofnanir SÁÁ vinna saman sem ein heild og bjóða sjúklingunum mismunandi meðferð eftir því hver meðferðarþörf þeirra er og hvaða tækifæri sjúklingar hafa. Þannig getur meðferðin verið allt frá stuttu inngripi á göngudeild upp í að vera viðamikil meðferð á Sjúkrahúsinu Vogi og öðru hvoru endurhæfingarheimilinu í eitt ár með göngudeildarstuðningi og dvöl á sambýli annan eins tíma.

 

Algengt er að fólk leiti sér fyrst upplýsinga og aðstoðar á göngudeild SÁÁ og oft er hægt að leysa vandann án þess að til innritunar á Vog þurfi að koma. Starfsmennirnir þar hafa auk þess veitt ýmis konar þjónustu í skólum og fyrirtækjum í áranna rás.

 

Göngudeildin býður öllum áfengis- og vímuefnafíklum mikinn stuðning og eftirfylgni eftir að þeir ljúka meðferð á Vogi, Vík eða Staðarfelli. Framhaldsmeðferðin sem þar fer fram er viðamikil og mismunandi.

  • Ráðgjafaviðtöl: Fyrir alkóhólista, vímuefnafíkla og aðstandendur þeirra.
  • Fjölskyldumeðferð: Annars vegar helgarmeðferð og hins vegar 4 vikur tvisvar í viku
  • Batanámskeið: Ætlað fíklum
  • Spilafíklameðferð: Frá föstudegi til sunnudags
  • Kvennastuðningur: Eins árs stuðningur fyrir konurnar í kvennameðferðinni
  • Stuðningshópur: Daglegur stuðningshópur fyrir konur og karla og stendur yfir í 3 vikur
  • Staðarfellshópur: Stuðningshópur í 3 mánuði
  • M-hópur: Göngudeildarmeðferð sem stendur yfir í 4 mánuði
  • Stuðningshópur aðstandenda: Fyrir aðstandendur í fjölskyldunámskeiði
  • Stuðningshópur spilafíkla: Til að komast í hópinn þarf að ræða við ráðgjafa
  • Kynningarfundur: Alla fimmtudaga kl. 18.00. Kynnt umfang starfs SÁÁ og veitt fræðsla um áfengissýki, aðra fíkn og meðvirkni

Félags-og útbreiðslustarf

Ljóst er að mikill velvilji er í garð SÁÁ hjá almenningi og að SÁÁ ber höfuð og herðar yfir aðrar meðferðarstofnanir, bæði hvað varðar traust til meðferðarinnar og þegar litið er til fjölda þeirra sem hjálpað hefur verið. Þessi velvilji er gríðarlega dýrmætur því hann birtist í áhuga 8000 einstaklinga á að vera í félaginu, miklum stuðningi við árlega álfasölu, jólafjáröflun, sértæka fjáraflanir og ekki síst meðal bakhjarla SÁÁ sem skuldbundið hafa sig til að styrkja með rausnarlegum hætti bráðamóttökuna á Vogi.

 

Það er verðugt verkefni að viðhalda þessum velvilja með útgáfu, upplýsingagjöf til almennings og fjölmiðla og almennri vinnu gegn fordómum sem er eitt mikilsverðasta verkefni samtakanna.

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.