SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Styrktarsjóður SÁÁ

Reglur um úthlutun

  1. Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð. Með því er reynt að koma í veg fyrir að áfengis- og vímuefnasjúklingar fái ekki tilhlýðilega meðferð vegna fátæktar.
  2. Tekjur í Styrktarsjóð SÁÁ koma frá einstaklingum, fyrirtækjum, stéttarfélögum og opinberum aðilum.
  3. Styrkir úr sjóðnum eru aðeins veittir þeim sjúklingum sem fara í endurhæfingarmeðferð á Staðarfell, Vík eða í endurhæfingu á göngudeild (M-hóp). Einnig geta aðstandendur áfengis- og vímuefnasjúklinga óskað eftir styrk til að greiða fyrir fjölskyldumeðferð.
  4. Framlög úr sjóðnum renna beint til þess að greiða umrædd vistgjöld.
  5. Þeir sem eiga rétt á fjárhagsstuðningi frá Velferðarsviðum sveitarfélaga munu ekki fá styrk úr þessum sjóði. Forsenda styrkveitingar er þörf sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá SÁÁ metur.
  6. Hægt er að veita styrk sem hluta af vistgjaldi eða fyrir vistgjaldinu öllu. Til þess að umsókn í sjóðinn teljist gild þarf að útfylla þar til gert eyðublað og áfengis- og vímuefnaráðgjafa sem er í starfi hjá SÁÁ þarf síðan að undirrita umsóknina ásamt viðkomandi sjúklingi.

 

Hægt er að leggja inn á styrktarsjóðinn með korti (sjá valmynd og hnapp) en einnig með því að leggja beint inn á reikning sjóðsins, kt. 521095-2459, banki 116, höfuðbók 15, reikningur 380410.

 

Veldu upphæð

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.