48 manna aðalstjórn
Aðalfundur SÁÁ er haldin á hverju ári og undanfarin ár hefur hann verið haldinn á tímabilinu maí til júní. Á aðalfundi eru félagar valdir í 48 manna aðalstjórn. Segja má að þessir 48 menn og konur séu kjölfesta samtakana sem velur sér formann og framkvæmdastjórn fyrir eitt ár í senn. Til þess að skapa festu í samtökin eru aðeins 16 menn kjörnir í aðalstjórnina til þriggja ára á ári hverju.
Aðalstjórn kýs úr sínum hópi 9 manna framkvæmdastjórn á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund og er formaður kosinn sérstaklega og er hann jafnframt formaður aðalstjórnar. Formaðurinn og framkvæmdastjórnin fá aðeins umboð til starfa eitt ár í senn og með því er mönnum skapað mikið aðhald.
9 manna framkvæmdastjórn
"Framkvæmdastjórnin fer í umboði aðalstjórnar með vald hennar milli aðalstjórnarfunda. Hún kýs sér varaformann, ritara og gjaldkera á fyrsta fundi sínum. Hún skal leggja fyrir aðalstjórn til umræðu og ákvarðanatöku allar fyrirætlanir um meiriháttar fjárfestingu, breytingu á rekstri stofnana eða stofnsetningu nýrra stofnana, svo og ákvarðanatöku um stefnumótun í samskiptum við opinbera aðila ef þurfa þykir.
Framkvæmdastjórnin sér um allar framkvæmdir og annast rekstur stofnana þeirra, er stofnað hefur verið til eða kunna að verða stofnsettar á vegum samtakanna og hefur úrskurðarvald í öllum málum er þær varða milli aðalstjórnarfunda."
"Framkvæmdastjórn ræður framkvæmdastjóra fyrir samtökin og yfirlækni þeirra sjúkrastofnana, sem samtökin reka. Má sami maður gegna yfirlæknisstarfi þeirra allra. Ráðning yfirlæknis er vegna ákvæðis 3. mgr. 31. gr. laga nr. 59/1983 um heilbrigðisþjónustu háð samþykki stjórnar viðkomandi sjúkrastofnunar sbr. niðurlagsákvæði 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Framkvæmdastjórn setur þessum starfsmönnum erindisbréf, þar sem verksvið þeirra skal vera nákvæmlega skilgreint. Framkvæmdastjórn er heimilt að skipa framkvæmdaráð sem starfar í umboði hennar á milli funda. Aðalstjórn er heimilt að ákveða stjórnarlaun formanns og stjórnarmanna í framkvæmdastjórn á fyrsta fundi eftir aðalfund."