|
|
 |
Markmið
-
Markmið sem samtökin vinna að koma fram í 2. grein laga þeirra: "Tilgangur Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann er: Að útrýma vanþekkingu og fordómum á áfengisvandamálinu og hafa áhrif á almenningsálitið með fræðslu um eðli sjúkdómsins alkóhólisma.
-
Að starfrækja afvötnunar- og endurhæfingarstöðvar fyrir alkóhólista og aðra vímuefnamisnotendur.
-
Að starfrækja göngudeildarþjónustu fyrir alkóhólista og aðra vímuefnamisnotendur.
-
Að starfrækja fræðslu og meðferð fyrir aðstandendur alkóhólista og annarra vímuefnamisnotenda.
-
Að vinna að fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerðum sem og endurhæfingu hinna sjúku.
-
Að styrkja til sérmenntunar starfsfólk til ofangreindrar starfsemi, svo og til annarra starfa málefninu viðkomandi.
-
Að skipuleggja sjálfboðaliðastörf og afla fjár til reksturs samtakanna.
-
Að afla og koma á framfæri til almennings upplýsingum um eðli og umfang þess vanda sem stafar af notkun áfengis og annarra vímuefna.
-
Að leita samvinnu við og styrkja þá starfsemi, sem berst raunhæft við áfengis- og vímuefnavandann.
-
Framangreindum tilgangi hyggst félagið ná með því að sameina leika sem lærða til baráttu, sem byggð er á þekkingu. SÁÁ sem slíkt er ekki bindindisfélag og vill forðast boð og bönn og hverskonar sleggjudóma."
|
 |

Nora í 60 MINUTES
Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.
|