SÁÁ
25. ágúst 2010 / 09:07
Senda á Facebook

Bati fyrir börnin - sálfræðiþjónusta fyrir börn fíkla

 

Undanfarin misseri hefur SÁÁ staðið fyrir sálfræðiþjónustu við börn alkóhólista og aðstandendur þeirra. Sú staðreynd er þar með viðurkennd að staða barna sem alast upp við alkóhólisma er þeim erfið og getur haft verulegar afleiðingar fyrir líf þeirra. Talið er að þjónusta sem þessi geti haft verulegt forvarnargildi um leið og unnið er með skilning barnsins á eigin stöðu og stöðu foreldra sinna með meiru. Börn í vanda hafa ekki sterka málssvara í okkar samfélagi.

 

Bati fyrir börnin er úrræði sem Lárus Blöndal sálfræðingur hefur þróað fyrir SÁÁ og er ætlað börnum alkóhólista og fíkla á aldrinum 7 - 17 ára. Tímapantanir eru í síma 530 7600.

 

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.