SÁÁ
Viðburður / 
15. desember 2011 / 11:18
Senda á Facebook

Hjaltalín + Lay Low

Hljómsveitin Hjaltalín var stofnuð árið 2004 og er skipuð þeim Axeli Haraldssyni, Grími Helgasyni, Guðmundi Óskari Guðmundssyni, Hirti Ingva Jóhannssyni, Högna Egilssyni, Rebekku Björnsdóttur, Sigríði Thorlacius, Viktori Orra Árnasyni og Þorbjörgu Daphne Hall.

Kaffi, kökur og rokk&ról

Jólagestir Arnars Eggerts halda áfram. Tónleikar með Skálmöld og Angist síðasta þriðjudag voru geggjaðir. Og það er rétt hægt að ímynda sér hvernig tónleikar með Hjaltalín og Lay Low verða á þriðjudagskvöldið 20. desember.

 

Hjaltalín + Lay Low

Hús opnar 20.00.

Tónleikar hefjast 20.30.

Tónleikum lýkur fyrir 22.00.

500 kr. inn

 

Kaffi og kökur í massavís fyrir tónleikahungraða sem -þyrsta!

 

*Nánari upplýsingar veitir Arnar Eggert í síma 822-7170.*

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.