SÁÁ
31. ágúst 2010 / 21:21
Senda á Facebook

Heiðursmenn hefja vetrarstarf

Heiðursmenn frá gömlum tíma

 

Heiðursmenn SÁÁ halda fyrsta fund vetrarins nú á fimmtudaginn 2. september kl 12.00 á Vogi. Á fundinum verður farið yfir síðasta vetur og starf komandi vetrar skipulagt. Nú er tími fyrir Heiðursmenn að skerpa vopnin og ræða hvernig þeir geta með sem bestum hætti stutt við starfsemi SÁÁ.  

 

Allir eru hjartanlega velkomnir og taka gjarnan með sér gesti.

 

Heiðursmenn SÁÁ

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.