SÁÁ
27. júlí 2010 / 09:33
Senda á Facebook

Opna eftir sumarfrí

 

Göngudeildir SÁÁ í Reykjavík og á Akureyri opna aftur eftir sumarfrí þriðjudaginn 3 ágúst. Deildirnar hafa verið lokaðar frá 28 júní sl. Símanúmer SÁÁ er 530 7600.

 

SÁÁ starfrækir Sjúkrahúsið Vog í Reykjavík sem var tekið í notkun árið 1984 og hefur fjöldi sjúklinga að undanförnu verið um 2000 á ári. Öll meðferð samtakanna hefst á Vogi. Gerðar eru læknisfræðilegar greiningar á öllum sjúklingum og þar með geðgreiningar. Aðkeyptar eru allar nauðsynlegar læknisrannsóknir og þau sérfræðiálit sem þörf er á bæði hvað varðar líkamlega heilsu og geðræn vandamál. Gerðar eru skimunarrannsóknir vegna kynsjúkdóma, alnæmis og lifrarbólgna og unglingar eru bólusettir við lifrarbólgu B. Allt þetta starf er unnið í náinni samvinnu við Húð- og kynsjúkdómadeild Landspítalans, Smitsjúkdómavarnir Landlæknisembættisins og Lyflækningadeildir Landspítala og Sjúkrahús Reykjavíkur. Auk þessa er góð samvinna við Geðdeild Landspítalans.

 

Auk Sjúkrahússins Vogs rekur SÁÁ umfangsmikla starfsemi í Reykjavík. Göngudeild samtakanna er í Efstaleiti 7, en þar er eftirmeðferð fyrir sjúklinga og fræðslu- og upplýsingamiðlun.

 

Á Akureyri starfrækir SÁÁ göngudeild og upplýsingaþjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandendur þeirra. 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.