SÁÁ
13. júlí 2010 / 10:47
Senda á Facebook

Unglingunum fjölgar aftur á Vogi

smella til að stækka

 

Á síðasta ári, 2009 leituðu færri unglinga 19 ára og yngri sér meðferðar á Sjúkrahúsið Vogi en undanfarin ár. Kreppan virtist því ekki breyta jákvæðri þróun í þessum efnum síðastliðin 7 ár. Þvert á móti, virtust fyrstu áhrif kreppunnar vera minnkandi vímuefnaneysla unglinga. Nú virðist  unglingunum fjölga aftur ef tölurnar frá Vogi eru skoðaðar fyrir fyrstu 6 mánuði þessa árs. Það virðist því full þörf að vera vel vakandi gagnvart vímuefnaneyslu unglinga og slaka hvergi á í forvörnum og unglingameðferð.

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.