SÁÁ
13. júlí 2010 / 10:23
Senda á Facebook

Rannsókn SÁÁ á lyfi sem á að koma í veg fyrir föll hjá amfetamínfíklum er byrjuð

 

Lyfið sem rannsaka á heitir naltrexone. Það hefur verið notað í nokkur ár við áfengissýki með nokkrum árangri. Sænskir vísindamen gerðu nýlega (2008) rannsókn sem gefur vonir um að lyfið geti komið í veg fyrir föll hjá amfetamínfíklum.

 

Öllum undirbúningi er lokið og öll tilskilin leyfi liggja fyrir og rannsóknarstarfið hófst  á Vogi í síðustu viku. Það er undirstofnun bandaríska heilbrigðisráðuneytisins, NIDA, sem kostar rannsóknina að mestu en nokkur kostnaður mun falla á SÁÁ. Ekki hefur tekist að fá innlenda aðila til að styrkja rannsóknina enn sem komið er.

 

Lyfið sem rannsaka á er dýrt og rannsóknin er einungis möguleg vegna þess að lyfjafyrirtækið Alkermes lætur lyf og lyfleysur af hendi endurgjaldslaust.  Að öðru leyti kemur ekki fjárstyrkur frá því fyrirtæki. 

 

Samstarfsaðili  SÁÁ í rannsókninni er Pennsylvania Háskólinn í Bandaríkjunum ( The University of Pennsylvania).

 

Lyfjarannsóknin er tvíblind sem kallað er og verður sjúklingum gefin forðasprauta ( VIVITROL ) einu sinni í mánuði í hálft ár. Sjúklingar fá að öðru leyti venjulega meðferð við sinni fíkn og sækja göngudeildarstuðning að stofnanameðferðinni lokinni.

 

 

Til baka...
Og hvað...?
- 28.3.2011 21:16:44 Hvernig gekk þessi rannsókn og er það ekkert á döfinni hjá heilbrigðiskerfinu að bjóða upp á þennan möguleika í baráttunni við áfengissýki
Hilmar

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.