SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Fjármál og rekstur

Þjónustusamningur og sjálfsaflafé

Rekstri og fjárhag SÁÁ er skipt niður í tvo megin hluta. Annarsvegar SÁÁ-sjúkrarekstur (kt:671077-0169) og hins vegar SÁÁ-samtök (kt:521095-2459). Báðar þessar rekstrareiningar eru reknar og þeim stjórnað samkvæmt lögum SÁÁ og af sömu stjórn. Á árinu 2000 ákvað stjórn SÁÁ að skipta rekstri ennfrekar niður. Þannig var ákveðið að bæta við rekstrareiningu sem ber nafnið SÁÁ-fasteignir (kt:490101-3140) og er hlutverk hennar að reka fasteignir samtakanna og munu því SÁÁ-samtök og SÁÁ-sjúkrarekstur leigja af SÁÁ-fasteignir. Tilgangur þessarar ákvörðunar er fyrst og fremst til að sýna betur raunverulegan húsnæðiskostnað hverrar rekstrareiningar.


SÁÁ-sjúkrarekstur er fjármagnaður með þjónustsamningi við íslenska ríkið og útseldri þjónustu. Halli hefur verið af þessum rekstri sem hefur verið greiddur upp af heildarsamtökunum, SÁÁ-samtök. Sjúkrastarfsemin er rekin samkvæmt heilbrigðislögum og fellur undir endur-skoðun Ríkisendurskoðunar og er hluti af ríkisreikningi.

 

Sjá gildandi þjónustusamninga: 

Samninganefnd heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, í samningi þessum nefnd verkkaupi og Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, í samningi þessum nefnd verksali, gera með sér svohljóðandi þjónustusamning um áfengis- og vímuefnameðferð fyrir sjúkratryggða einstaklinga á sjúkrahúsinu Vogi.
 
Samningur milli samninganefndar heilbrigðisráðherra (SHBR) og Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ), (hér nefnd verksali) um áfengis- og vímuefnameðferð fyrir sjúkratryggða einstaklinga á dagdeild.


SÁÁ-samtök eru fjármögnuð af eigin fjáröflunum, útseldri þjónustu, félagsgjöldum, styrkjum og ýmsum öðrum framlögum. Allar fasteignir fyrir starfsmi SÁÁ eru í eigu SÁÁ-samtök og allar langtímaskuldir, veð og tryggingar eru skráðar á samtökin. Allar byggingaframkvæmdir eru á vegum og ábyrgð samtakanna. Rekstur samtakanna er endurskoðaður af löggiltum endurskoðendum auk kjörinna skoðunarmanna stjórnar.


Fjármálum og fjáröflunum SÁÁ er stjórnað af af skrifstofu samtakanna. Mikill vöxtur hefur verið í heildarrekstri SÁÁ og framkvæmdir og fjárfestingar verið verulegar svo sem:


1991 Meðferðarheimilið Vík byggt
1993 Áfangaheimilið Miklubraut 1 keypt og stofnsett
1992 Félagsheimilið Úlfaldinn stofnsett
1995 Húsnæði fyrir áfangaheimilið Fjóluna keypt
1996 Meðferðarheimilið Staðarfelli endurbyggt
1996 Lóð við Efstaleiti í Reykjavík
1995 Forvarnadeild stofnsett
1996 Skrifstofur fluttar og innréttaðar í Ármúla 18
1997 Hafinn undirbúningur að viðbyggingum við Vog
1997 Keypt íbúðarhúsnæði fyrir starfsemi SÁÁ á Akureyri
1998 Byggingarframkvæmdir hafnar við Vog
2000 Unglingadeild við Vog opnur í ársbyrjun
2000 Göngudeild við Vog tekur til starfa

2005 Byggingarframkvæmdir á lóð samtakanna við Efstaleiti

2006 Efstaleiti 7 tekið í notkun í nóvember

2008 Áfangaheimilið Vin við Stórhöfða stofnsett

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.