SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Ársrit 2007-2010

 

SÁÁ hefur gefið út ársskýrslu eða ársrit á hverju ári frá árinu 1991 til ársins 2006. Að þessu sinni er ársskýrslan nokkuð sérstök. Í fyrsta lagi hefur ársskýrslan eða ársritið ekki komið út í tvö ár og gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár 2007-2009. Í öðru lagi má finna í skýrslunni fyrstu áhrif hruns fjármálakerfisins og kreppunnar sem hófst haustið 2008 á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu og fíkn á Íslandi.

 

 

Meginmarkmið SÁÁ er að vinna gegn fordómum og vanþekkingu á áfengis og vímuefnafíkn og sjá til þess að vímuefnafíklum og aðstandendum þeirra standi til boða besta meðferð og þjónusta sem völ er á. Samtökin nota eigur sínar til þess arna og standa vörð um þá þekkingu og reynslu sem starfsfólkið og meðferðarstofnanirnar hafa yfir að ráða. Markmiðum sínum ná samtökin einnig fram með því að knýja á um að opinberir aðilar viðurkenni tilvist vímuefnavandans og veiti nægum fjármunum til eðlilegs og nauðsynlegs forvarnar- og meðferðarstarfs.

 

Ársritið á pdf formi (1.8 MB)

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.