SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Afmælisráðstefna SÁÁ 2011

Haldin dagana 6-7 október í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti

SÁÁ hefur árum saman haldið ráðstefnu í tengslum við afmælisfundinn í Háskólabíó. Að þessu sinni verður sjónum beint að kjarnanum í rekstri SÁÁ; meðferðinni sjálfri. Allar þær stéttir sem koma að fjölfaglegri meðferðinni munu meta stöðuna; hvað hafi vel tekist og reynist enn vel, hvað þurfi að aðlaga breyttum aðstæðum sjúklingahópsins og hvar megi gera betur. Fyrirlestrar verða fluttir af læknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, áfengis- og vímuefnaráðgjöfum, félagsráðgjöfum og fleirum — og munu allir vanda sig við að tala ekki inn í eigin stétt heldur þvert á móti þannig að aðrar stéttir og leikmenn geti skilið.

 

Þessi ráðstefna er því ekki aðeins ætluð fagmönnum sem vinna við áfengis- og vímuefnameðferð heldur öllu áhugafólki um áfengis- og vímuefnavandann — því það er okkur áfengis- og vímuefnasjúklingum mikilvægt að hér þróist og eflist góð meðferð samhliða styrkingu 12 spora-samtaka og hertri réttindabarátta og eyðingu fordóma.

 

Aðgangur ókeypis.

 

Fimmtudagur 6. október

09.00-09.45 Áfengis- og vímuefnasjúklingurinn

Sigurður Gunnsteinsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi

09.45-10.30 Ráðgjafinn - þroski, þróun, reynsla

Hjalti Björnsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi, dagskrárstjóri á Vogi

10.45-11.15 Þjálfun sjúkraliðans í starfi á Vogi – Þverfagleg vinna og geta til að segja nei.

Gunnar Friðriksson sjúkraliði

11.15-12.00 Sjúkdómur áfengis- og vímuefnafíknar - aukin þekking, breytt viðhorf

Þórarinn Tyrfingsson læknir

12.00-13.00 Hlé
13.00-13.45 Pabbi, ertu hættur að drekka?

Hvernig er hægt að aukaforeldrahæfni áfengis- og vímuefnasjúklinga og maka þeirra eftir meðferð ?

Lárus Blöndal sálfræðingur

13.45-15.00 Unglingaþjónusta SÁÁ - núverandi þjónusta og framtíðarsýn

Umræður að loknum stuttum framsögum 10. mín

Þórarinn Tyrfingsson, læknir : Faraldsfræði og árangur meðferðar

Ásgrímur Jörundsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi: Hvað má gera betur nú þegar ?

Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ : Framtíðarsýn

15.15-15.45 Mikilvægi skráningar og tölvuvinnslu í sjúklingavinnu og rannsóknum

Magnús Einarsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi

15.45-16.10 Tóbaksfíkn

Sverrir Jónsson læknir

16.30-17.15 Vogur Sjúkrahús – tími breytinga

Valgerður Rúnarsdóttir læknir

...

Föstudagur 7. október

09.00-09.45 Hvernig áfengis- og vímuefnameðferð og AA- samtökin vinna saman
Gísli Stefánsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi dagskrárstjóri á Staðarfelli
09.45-10.30 Á að útdeila nálum og sprautum til fíkla og gera þeim kleift að sprauta sig við góðar aðstæður

Umræður að loknum stuttum framsögum 10. mín

Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri: Hvernig er staðan ?

Valgerður Rúnarsdóttir læknir:Hvað er hægt að gera ?

10.45-11.15 Hverjir leita í göngudeild og hvað er hægt að gera?
Hörður Oddfríðarson áfengis- og vímuefnarágjafi, dagskrárstjóri göngudeildar
11.15-11.45 Þverfagleg samvinna með augum hjúkrunarfræðingsins
Halla Logadóttir hjúkrunarfræðingur og Ásdís Finnbogadóttir hjúkrunarfræðingur
11.45-12.15 Gerum við nógu mikið fyrir veikustu sjúklingana?
Valgerður Rúnarsdóttir læknir
12.15-13.00 Hlé
13.00-13.45 Meðferð fyrir amfetamínfíkla
Páll Bjarnason áfengir- og vímuefnaráðgjafi
13.45-14.30 Hugræn atferlismeðferð
Jónas Haukur sálfræðingur
14.30-15.00 Meðferð fyrir aðstandendur
Helga Óskarsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi
15.20-15.45 Fyrirmyndir
Anna Hildur Guðmundsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi, dagskrárstjóri göngudeildar á Akureyri
15.45-16.30 Síðhvörf með augum læknisins

Hver er hugræn geta áfengis- og vímuefnasjúklingsins þegar hann hefur lokið afeitrun

Hildur Þórarinsdóttir læknir

16.30-17.15 Áfengis- og vímuefnameðferð SÁÁ - hugmynda og þekkingargrunnur
Þórarinn Tyrfingsson læknir

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.