SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Erfðarannsókn

SÁÁ og Íslensk erfðagreining hafa gert samstarfssamning um rannsókn á erfðum fíknsjúkdóma sem er liður í viðamiklu Evrópsku samstarfsverkefni átta rannsóknarstofa um rannsóknir á líffræðilegum orsökum fíknar sem hlotið hefur 8,1 milljóna Evra styrk frá Evrópusambandinu. Einnig hefur verkefnið hlotið styrk frá Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna (NIH, National Institute of Health) til að skoða sérstaklega erfðir nikótínfíknar.

 

Rannsóknin er gerð á vegum SÁÁ í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu annars vegar og í samvinnu við Lungna- og berklavarnadeild Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík og Lungnadeild Landspítala-háskólasjúkrahús að því er varðar nikótínfíkn hins vegar. Aðalábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir SÁÁ, en greiningarvinna og söfnun blóðsýna mun fara fram á Sjúkrahúsinu Vogi í samvinnu við Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna í Nóatúni 17. Rannsóknin hefur hlotið samþykki Persónuverndar og Vísindasiðanefndar.

 

Tilgangur rannsóknarinnar er að greina þátt erfða í myndun vímefnafíknar almennt, og eins m.t.t. sértækrar efnafíknar, s.s. fíkn í áfengi, nikótín, og annarra vímuefna. Enn fremur beinist rannsóknin að mögulegum erfðafræðilegum tengslum fíknsjúkdóma við geðraskanir eins og t.d. þunglyndi og kvíða.

 

Leitað er til sjúklinga sem hafa verið til meðferðar vegna fíknsjúkdóma á vegum SÁÁ frá stofnun samtakanna 1977 og þar til rannsókn er lokið. Sömuleiðis verður leitað til ættingja viðkomandi. Þá mun þátttakendum í rannsókn á erfðum kvíða og þunglyndis sem hafa fengið greininguna vímuefnafíkn samkvæmt skilmerkjum þeirrar rannsóknar, boðin þátttaka, auk þeirra sem eiga við nikótínfíkn að etja samkvæmt skrám heilbrigðisstofnana og/eða upplýsingum sem þeir hafa veitt Íslenskri erfðagreiningu.

 

* Staðsetning- viðtöl-móttaka-starfsfólk

* Kynningarbréf SÁÁ (pfd skrá)

* Samþykkisyfirlýsing (pdf skrá)

* Svara spurningalistanum

 

Í þátttöku felst að gefa blóðsýni, svara spurningalistum (um neyslu á áfengi og öðrum vímuefnum, tóbaksnotkun og tóbaksfíkn, notkun lyfja, og svara spurningum um persónuleika) og koma í viðtal að Sjúkrahúsinu Vogi til nánari greiningar fíknsjúkdóma og geðraskana.

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.