
- fyrir alkóhólista
Meðferðin getur verið allt frá stuttu inngripi á göngudeild upp í að vera viðamikil meðferð á Sjúkrahúsinu Vogi og öðru hvoru endurhæfingar-heimilinu í eitt ár með göngu-deildarstuðningi og dvöl á sambýli annan eins tíma. Meira... |

- fyrir aðstandendur
Aðstandendum er fyrst og fremst sinnt í göngudeildum SÁÁ með viðtölum og sérstakri fjölskyldu-meðferð. Meðferðin tekur fjórar vikur en að auki geta aðstandendur nýtt sér vikulegan stuðningshóp í kjölfar meðferðarinnar. Meira... |

- fyrir unglinga
Yfirstjórn unglingameðferðar er í höndum lækna. Þegar tekið er tillit til þess úr hvers konar vímuefna-neyslu unglingarnir koma má ljóst vera að læknismeðferðar er þörf vegna fráhvarfa og fylgikvilla. Slík þjónusta er veitt á Vogi. Meira... |

- fyrir spilafíkla
Allir sem telja sig hafa vanda vegna fjárhættuspils eiga kost á einkaviðtali við ráðgjafa á Göngudeild Efstaleiti 7 eða Hofsbót 4 á Akureyri. Hver sem er getur pantað viðtalstíma í síma 530-7600 eða komið fyrirvaralaust og talað við vakthafandi ráðgjafa. Meira... |

- á göngudeild
Algengt er að fólk leiti sér fyrst aðstoðar á göngudeildum og oft er hægt að leysa vanda þess án þess að til innritunar á Vog þurfi að koma. Á göngudeild SÁÁ er umfangsmesta meðferðarþjónusta fyrir aðstandendur vímuefnafíkla á landinu. Meira... |

Kynningarfundir
- eru haldnir alla fimmtudaga kl. 18:00 í Von Efstaleiti og í göngudeild Akureyri fyrsta mánudag hvers mánaðar kl. 17:30. Á fundunum er fjallað um starfsemi SÁÁ, fíkn-sjúkdóma og meðvirkni. Fyrirspurnum er svarað um tengd mál. Meira... |

Fjölskyldumeðferð
Í meðferðinni er leitast við að auka þekkingu þátttakenda á fíknsjúkdómum, einkennum, birtingarmyndum og hvaða áhrif fíknsjúkdómur getur haft á alla þá sem búa í návígi við hann. Reynt er að hrinda af stað breytingum til bóta innan fjölskyldunnar. Meira... |

Batahelgi
Markmið meðferðar er að auka skilning þátttakenda á bata við alkóhólisma og hjálpa þeim til að glöggva sig á hvar þeir eru staddir í þróun batans. Þátttakendur ættu að skilja betur en áður, hvaða verkefnum þeir standa frammi fyrir. Meira... |

Foreldrafræðsla
- er alla þriðjudaga kl. 18:15 á Sjúkrahúsinu Vogi. Sérstök fræðsludagskrá fyrir foreldra unglinga sem eru eða hafa verið í meðferð hjá SÁÁ. Hentar einnig vel fyrir foreldra sem eru að byrja að leita sér aðstoðar.
Meira... |

Aðstandendur
Meðferð fyrir aðstandendur alkóhólista/fíkla. Það skiptir engu hvort alkóhólistinn/fíkilinn hefur farið í meðferð eða ekki. Meðferðin fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum í fjórar vikur og stendur frá kl 17:30 til kl. 20:00. Meira... |

Rannsóknir
SÁÁ og NIDA rannsaka lyf sem á að koma í veg fyrir föll hjá amfetamín-fíklum eftir meðferð. Lyfið heitir naltrexone og hefur verið notað við áfengissýki. Rannsókn gefur vonir um að lyfið geti komið í veg fyrir föll hjá amfetamínfíklum. Í vinnslu |

AA-leiðin
Algengur misskilningur um AA-samtökin er að þau séu trúhreyfing. Einkum er það algengt hjá nýliðum að misskilja áherslu AA á andlega þáttinn. Sporin tólf eru leið AA-samtakanna til heilbrigði og á engan hátt trúaryfirlýsing. Meira... |

Fyrirlestrar
Margir fyrirlestrar eru haldnir fjölskyldumeðferðinni, foreldra-fræðslu, í stuðningshópum, á batanámskeiðum, kynningarfundum og öðrum opnum fundum sem SÁÁ stendur fyrir. Í vinnslu |

Almenningur
SÁÁ eru fjölmenn samtök og margir hafa komið inn á félagaskrá samtakanna í gegnum árin. Sam-tökin standa vel fjárhagslega og njóta velvildar og stuðnings meðal almennings og stjórnvalda. |

Sjálfspróf
Er áfengisneyslan er í lagi ?
Ef þú drekkur stundum fjóra daga samfellt og skelfur eftir drykkjuna? Hefur farið í bindindi eða hugsað um að hætta? Ástvinir þínir eða foreldrar haft áhyggjur? Meira... |
|
|
|