SÁÁ

Um skaðlaus vímuefni

 

Góðar fréttir?

Á unglingsárunum fara margvíslegir þættir utan veggja heimilisins að skipta meira máli en áður. Ungt fólk á uppleið, heilsuhraust, tækifærin óteljandi, framtíðin blasir við. Hvað getur svo sem farið úrskeiðis? Þegar eitthvað fer alvarlega úrskeiðis í lífi ungmenna tengist það yfirleitt slysum, sjálfsvígum, afbrotum eða annarri andfélagslegri hegðun. Ungmennum stafar sem sé mest hætta af eigin hegðun. Í ljós hefur komið að alvarleg áföll í lífi ungmenna tengjast í meirihluti tilvika vímuefnaneyslu með beinum eða óbeinum hætti.

Því miður eru ýmsar blikur á lofti varðandi vímuefnaneyslu ungs fólks. Undanfarin ár hefur orðið veruleg aukning á hassneyslu meðal grunn - og framhaldsskólanema. Á sama tíma fjölgar sjúklingum úr þessum aldurshópi á Vogi og er hass- og amfetamínneysla vaxandi í þeim hópi. - Þessi þróun er í samræmi við það sem er að gerast í löndunum í kringum okkur. Leitað hefur verið skýringa og m.a. bent á að í unglingamenningu Vesturlanda hafa undanfarið verið sterkir straumar hliðhollir kannabisneyslu. Umræða um lögleiðingu kannabisefna hefur verið veruleg á opinberum vettvangi, þó hún eigi sér ekki háværa fylgismenn hérlendis. Íslensk ungmenni fara engu að síður ekki varhluta af þessum straumum og þeir sem umgangast unglinga í leik og starfi telja að jákvæð viðhorf til kannabisneyslu séu mjög útbreidd.

Vissulega væru það góðar fréttir, ef sannar reyndust, að kannabisefni væru þeirrar náttúru, að áhættan við neyslu þeirra væri lítil sem engin. Margir myndu alla vega fagna vímuefni, sem breytti vitundarástandi neytandans, án þess um leið að skerða dómgreind hans og hæfni, hefði engin neikvæð langtímaáhrif á starfsemi miðtaugakerfisins, líkamleg vanabinding væri sannanlega ekki fyrir hendi og sálræn vanabinding væri álíka meinlaus og líkamsræktaráhugi eða að vera sólginn í appelsínur. - En því miður, hið skaðlausa vímuefni hefur enn ekki litið dagsins ljós.

 

Um það geta 500 ungir einstaklingar vitnað, sem leita sér aðstoðar á Vogi ár hvert vegna þess að þeir hafa misst tökin á lífi sínu vegna hassneyslu.  

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...