Vísindalegar rannsóknir hafa margoft verið gerðar á spurningalistum þeim sem
hér er að finna. Niðurstaða þessara rannsókna er sú að þeir eru furðu nákvæmir.
Ef þú hefur áhuga á að fá svör við því hvort áfengisneysla þín eða einhvers
sem þú þekkir er eðlileg eða ekki ættir þú að fá nokkuð nákvæmt svar ef þú svarar
spurningunum samviskusamlega.
Kross í ferninginn merkir jákvætt svar en auður ferningur neikvætt.