
Viltu vita hvort áfengisneyslan er í lagi ?
Ef þú drekkur stundum fjóra daga samfellt og skelfur eftir drykkjuna? Hefur farið í bindindi eða hugsað um að hætta? Ástvinir þínir eða foreldrar haft áhyggjur? Þá er vandinn alvarlegur og ef allt þetta er fyrir hendi ert þú alkóhólisti og þarf á meðferð að halda.
Til eru spurningalistar sem geta upplýst þig frekar og gefið þér vísbendingar - líttu á þá. Þú getur síðan pantað þér viðtal á Göngudeild SÁÁ á morgun ef það er virkur dagur. Síminn þar er 530-7600.
Vísindalegar rannsóknir hafa margoft verið gerðar á spurningalistum þeim sem hér er að finna. Niðurstaða þessara rannsókna er sú að þeir eru furðu nákvæmir. Ef þú hefur áhuga á að fá svör við því hvort áfengisneysla þín eða einhvers sem þú þekkir er eðlileg eða ekki ættir þú að fá nokkuð nákvæmt svar ef þú svarar spurningunum samviskusamlega.
Spurningalistar geta hins vegar aldrei orðið eins nákvæmir og viðtal við fagfólk með sérþekkingu. Ef þú ert í einhverjum vafa skaltu því leita til slíkra aðila. Þú getur t.d. farið í viðtal á göngudeild SÁÁ í Reykjavík eða á Akureyri eða talað við heilsugæslulækninn þinn um málið.