SÁÁ

Fyrir foreldra 12-13 ára

 

Barn í millibilsástandi

Það eru yfirgnæfandi líkur á, að áður en barnið þitt verður fullorðið muni einhver beita það beinum eða óbeinum þrýstingi til að nota áfengi eða önnur vímuefni. Þetta verður að öllum líkindum ekki einhver ókunnugur, skuggalegur maður. Líklega verður það vinur/vinkona, nágranni eða eldra systkini. Líklega verður viðkomandi á svipuðum aldri og barnið þitt, eða lítið eitt eldri. Spurningin er ekki hvort slíkur aðili muni koma inn í líf barnsins þíns, heldur hvenær.


Hvað mun barnið þitt segja og gera þá?

Það fer að miklu leyti eftir því sem þú segir og gerir núna. Barnið þitt er í millibils ástandi - nógu gamalt til að skilja alvarleika málsins og nógu ungt til að taka heilshugar leiðbeiningum foreldra sinna.

  1. Talaðu við barnið þitt um áfengi og önnur vímuefni.
  2. Lærðu að hlusta á barnið þitt.
  3. Hjálpaðu barninu þínu að vera sátt við sjálft sig.
  4. Hjálpaðu barninu þínu að þróa sterkt gildismat.
  5. Vertu barninu þínu góð fyrirmynd varðandi neyslu áfengis og tóbaks.
  6. Hjálpaðu barninu þínu að takast á við þrýsting jafnaldrahópsins.
  7. Settu skýrar reglur um að barnið þitt noti ekki áfengi eða önnur vímuefni.
  8. Ýttu undir að barnið þitt stundi heilbrigð og skapandi áhugamál.
  9. Vertu í samstarfi við aðra foreldra.
  10. Vittu hvernig þú átt að bregðast við ef vandamál koma upp.

Það getur haft mikil áhif að ræða þessi mál við barnið þitt einmitt núna, og fylgja því síðan eftir með þeim ráðum sem nefnd voru hér að framan. Þannig getur þú hugsanlega aukið líkurnar á að barnið þitt segi NEI við áfengi og öðrum vímuefnum þegar þar að kemur.

Ást þín og umhyggja gæti verið lykillinn að því að barnið þitt haldi sig frá áfengi og öðrum vímuefnum.

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...