Upplýsingar um meðferðardagskrá, gátlisti, dagskipan, húsreglur og aðrar gagnlegar upplýsingar.
Upplýsingar um starfsemi SÁÁ í Efstaleiti 7.
Ef þú vilt vita hvort þú drekkur of mikið áfengi getur þú fræðst um hvernig hófleg áfengisneylsa er skilgreind. Auk þess getur þú svarað nokkrum spurningalistum sem segja til um stöðu þína.
Ráðleggingar og upplýsingar til sjúklinga um hversu mikið áfengi er óhætt að drekka
Tilgangur ritsins er að veita fræðsu um sjúkdóminn alkóhólisma og þau meðferðarúrræða sem standa alkóhólistum og aðstandendum þeirra til boða.
Upplýsingarit fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Hafir þú einhvern tíma átt í erfiðleikum vegna alkóhólisma, getur þessi bæklingur gefið þér hugmynd um hvað gera skal og hvað ekki.
Spilafíkn er sjúkdómur sem hægt er að ráða við. Ef sjúklingurinn viðurkennir vandann, er tilbúinn til að fræðast um sjúkdóminn og leggur sig fram við að tileinka sér reynslu annarra sem náð hafa tökum á spilafýsninni, getur hann öðlast nýtt líf.
Margir Íslendingar spila fjárhættuspil og hafa af því gaman án þess að bera af því skaða. Aðrir eru þannig gerðir að þeir hafa ekki stjórn á spilamennsku sinni og eru kallaðir spilafíklar.
Með Ecstacy- eða E-pilluæðinu hefur ólögleg vímuefnaneysla ungs fólks og unglinga á Vesturlöndum aukist svo mjög að tala má um nýjan faraldur. Ólögleg vímuefnaneysla var þó ærin fyrir. Í þessum bæklingi er reynt að gera grein fyrir eðli .essa faraldurs og vandanum sem hann skapar. Málið er svo stórt og svo mikið er í húfi að það er beinlínis skylda okkar allra að kynna okkur málið og taka afstöðu til þess.