Gamma hydroxybutyrate ( Gamma hydroxísmjörsýra )
Gamma hydroxybutyrate ( Gamma hydroxísmjörsýra ) er niðurbrotsefni boðefnisins GABA sem róar heilastarfsemina og finnst mjög víða í heilanum. Það er tiltölulega einfalt að framleiða efnið ólöglega og leiðbeiningar um það hafa verið á vefnum frá 1997.
Saga efnisins er í stuttu máli sú að reynt var að nota efnið til svæfinga en vegna slæmra aukaverkana einkum krampa urðu menn að hætta þeim tilraunum. Efnið birtist síðan á vaxtaræktarstöðvum í Japan og breiddist þaðan til Evrópu. Einhver mannvitsbrekkan sagðist hafa komist að því að efnið yki vöðvavöxt og gerði fólk þannig stærra, sterkara og fallegra. Slíkt er þó að öllum líkindum tóm vitleysa og efnið hefur ekki náð vinsældum í vaxtaræktarheiminum.
Efnið birtist síðan um 1990 í Bandaríkjunum og eftir það í Evrópu. Nú var það notað á danshúsum líkt og LSD og Helsæla. Efnið hefur líka gengið undir nafninu " Rapedrug " því nauðgarar hafa sett það í vínglas hjá fórnarlömbum sínum. Efnisins varð fyrst vart á Íslandi 1997 og kom þá inn á vímuefnamarkaðinn og var selt sem " fljótandi ecstacy". Á Sjúkrahúsinu Vogi gekk efnið undir nafninu "Táfýla". Nokkrir einstaklingar glöptust á að taka efnið inn og komust við það í hann krappan og lentu á Slysavarðstofunni vegna þess að þeir mistu meðvitund og önduðu svo hægt og lítið. Lítið hefur orðið vart við efnið að undanförnu.
10 mg af efninu veldur vímu og neytandinn sér allt í þoku. Mjög stutt er í alvarleg áhrif efnisins, því að 50 mg valda svæfingu, öndunin hægir á sér og dæmi eru um að fólk hafi orðið meðvitundarlaust og dáið af þessum skömmtum. Mikil hætta er á krömpum. Eftir vímuna man einstaklingurinn ekkert eftir því sem átti sér stað meðan hann var í vímunni. Það eina góða við efnið virðist vera að það virkar mjög stutt.
Efnið er sérstaklega varasamt vegna þess að það hefur samverkun með áfengi og róandi efnum og geta því litlir skammtar af efninu valdið dauða ef einstaklingurinn er undir áhrifum áfengis eða róandi lyfja.