Ráðstefnugögn á pdf formi
Myndaalbúm
Dagskrá
Fyrsta til þriðja október 2007 hélt SÁÁ veglega afmælisráðstefnu um fíkn. Tilefnið var þrjátíu ára afmæli SÁÁ. Ráðstefnan sem stóð í þrjá heila daga var haldin í glæsilegum húsakynnum samtakanna við Efstaleiti 7 í Reykjavík. Húsfyllir var alla daga þar sem fagfólk í áfengis- og vímuefnameðferð og forvörum og annað áhugafólk kom saman. Ráðstefnustjórar voru Hörður J. Oddfríðarson og Magnús Kr. Einarsson. Margir starfsmenn SÁÁ komu að undirbúningi og framkvæmd ráðstefnunnar, sem tókst í alla staði mjög vel.
Fyrsti dagur ráðstefnunnar var tileinkaður áfengisfíkn. Í upphafi dagsins ávarpaði forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, ráðstefnugesti og setti ráðstefnuna. Þá lék Peter Maté píanóleikari tvö verk eftir Bach og Brahms en eftir það tók við viðamikil dagskrá þar sem dr. Frank Vocci reið á vaðið og hélt fyrirlestur um heilasjúkdóminn fíkn. Í kjölfarið steig Þórarinn Tyrfingsson í stólinn og ræddi um gagnagrunn SÁÁ og þær upplýsingar sem hann hefur að geyma. Eftir stutt kaffihlé var komið að Mark L. Willenbring MD til að ræða þróun áfengisneyslu og áfengisfíknar í Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Að loknu hádegishléi hélt Mark áfram og ræddi um forvarnir og meðferð. Þórólfur Þórlindsson forstjóri Lýðheilsustöðvar hélt erindi um áfengisforvarnir í opnu samfélagi og strax að því loknu tók Þórarinn Tyrfingsson við og ræddi um forvarnir og meðferð við áfengisfíkn hjá SÁÁ. Þegar Þórarinn hafði lokið máli sínu var komið að Bjarna Össurarsyni yfirlækni á LSH sem kynnti dagmeðferð fyrir vímuefnasjúklinga á Landspítala. Þau Valgerður Rúnarsdóttir læknir hjá SÁÁ og Sigurður Gunnsteinsson fræðslustjóri SÁÁ ræddu að því loknu um áfengissýki sem hefst á seinni hluta ævinnar, umfang – afeitrun – meðferð. Sigurður Ólafsson læknir á LSH flutti erindi um sjúkdóma í meltingarvegi í íslenskum alkóhólistum og Björn Logi Þórarinsson tók við með erindi um sjúkdóma í taugakerfi hjá sama hóp.
Í lok fyrsta dags var efnt til pallborðsumræðna um stefnu í áfengis- og forvörnum á Íslandi. Spunnust líflegar umræður um málefnið þar sem sitt sýndist hverjum.
Annar dagur ráðstefnunnar var helgaður örvandi vímuefnafíkn. Jag H. Khalsa phd. frá NIDA hélt erindi um líkamlega fylgikvilla örvandi vímuefnaneyslu. Þá tók við Haraldur Briem sóttvarnarlæknir sem ræddi um tíðni og nýgengi HIV, lifrarbólgu B og C og klamidíu. Sigurður Ólafsson læknir á LSH talaði um lifrarbólgu C og meðferð við henni. Valgerður Rúnarsdóttir tók við og ræddi um sýkingar meðal sprautufíkla á Vogi og síðasta erindi fyrir hádegishlé hélt Jag H. Khalsa en það var um milliverkanir lyfja við HIV sýkingum og fíknisjúkdómum.
Eftir hádegishlé flutti dr. Frank Vocci erindi um hvernig vitræn geta skaðast vegna neyslu örvandi vímuefna og dr. Þorgeir Þorgeirsson frá Íslenskri erfðagreiningu ræddi erfðir amfetamínfíknar á Íslandi auk þess sem hann sagði frá íslenskri erfðarannsókn á fíknsjúkdómum. Amfetamínfíkn á Íslandi var yfirskriftin á erindi Þórarins Tyrfingssonar og Ófeigur T. Þorgreisson læknir á bráðamóttöku LSH ræddi um fjölgun ofbeldisáverka sem koma á slysa- og bráðadeild LSH og hvernig þeir tengjast áfengisneyslu. Stefán Eiríksson Lögreglustjóri Höfuðborgarsvæðisins tók svo til máls en erindi hans hét Tengsl örvandi vímuefnaneyslu við ofbeldi og önnur lögbrot. Þá var komið að erindi Valgerðar Rúnarsdóttur læknis sem fjallaði um Ópíóðafíkn, sókn í meðferð eftir 1999 og viðhaldsmeðferð við ópíóðafíkn á Íslandi.
Yfirskrift fyrir pallborðsumræður dagsins var “Eru viðbrögð stjórnvalda nægileg við aukinni vímuefnaneyslu landans – er ástandið einungis bundið við miðborg Reykjavíkur?” Aftur sköpuðust líflegar umræður enda umfangsmikið efni á ferðinni.
Á þriðja degi ráðstefnunnar var rætt um kannabisfíkn og meðferð fyrir unglinga. Dr. Jag H. Khalsa ræddi um afleiðingar kannabisneyslu á heilsufar og Þórarinn Tyrfingsson ræddi um kannabisfíkn á Íslandi. Sverrir Jónsson læknir hjá SÁÁ sté þá á svið með erindi um meðferð unglinga hjá SÁÁ og Hjalti Björnsson dagskrárstjóri á Vogi fjallaði um sama efni. Að því loknu var fjölskylduþjónusta og meðferð SÁÁ kynnt af þeim Gísla Stefánssyni dagskrárstjóra í Göngudeild SÁÁ, Halldóru Jónasdóttur dagskrárstjóra á VÍK og Þórdísi Davíðsdóttir ráðgjafa á Vogi. Lárus Blöndal sálfræðingur hjá SÁÁ kynnti nýja þjónustu fyrir börn fíkla.
Gísli, Halldóra og Þórdís voru aftur á ferðinni eftir hádegishlé og kynntu meðferðarúrræði og störf hjá SÁÁ ásamt Valgerði, Hjalta, Ásgerði Björnsdóttur framkvæmdastjóra SÁÁ, Ásgrími Jörundssyni dagskrárstjóra hjá SÁÁ Akureyri, Sigurði Guðmundssyni dagskrárstjóra á Staðarfelli, Þóru Björnsdóttur hjúkrunarforstjóra á Vogi og Herði J. Oddfríðarsyni deildarstjóra Forvarnardeildar SÁÁ. Halldór Hauksson yfirsálfræðingur á Stuðlum kynnti vanda unglinga sem koma til meðferðar þar og Hervör Alma Árnadóttir hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar talaði um uppbyggingu ungs fólks og fjölskyldunnar. Félagslegar aðstæður og áhættuþættir hjá unglingum sem leita sér meðferðar var umfjöllunarefni Sverris Jónssonar læknis hjá SÁÁ og Rafn M. Jónsson verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð ræddi um kannanir á vímuefnaneyslu grunnskólabarna á Íslandi. Lokaerindi ráðstefnunnar flutti Þórarinn Tyrfingsson sem gerði það að umræðuefni hvort neyslukannanir spái fyrir um fjölda unglinga í meðferð.
Þessi þriðji dagur ráðstefnunnar endaði svo á líflegum pallborðsumræðum þar sem umræðuefnið var “Vímuefnaneysla unglinga, hvert stefnir?”