6. október 2010 09:17
Meðvirkni
Það reynir mjög á alla í fjölskyldunni þegar einn úr henni verður fíkinn í vímuefni eða fjárhættuspil. Allir sem standa fíklunum nærri þurfa fræðslu og stuðning. Auk þessa getur álagið oft orðið svo mikið og langvinnt hjá þeim sem næst standa, að þeir verða beinlínis veikir og þurfa meðferð.
Frá upphafi hefur SÁÁ sinnt þessari mikilvægu þjónustu og frá árinu 1978 hafa verið haldin meðferðarnámskeið fyrir aðstandendur, auk þess sem boðið hefur verið upp á einstaklingsráðgjöf og stuðningshópa. Þessi starfsemi hefur verið einn mikilvægasti þáttur göngudeildarstarfsins og er unnin í nánum tengslum við meðferðarstarfið. Þannig er flestum nánum aðstandendum þeirra sem í meðferð eru, kynnt og boðin þessi þjónusta.
Auk þjónustunnar sem veitt er á sérstökum meðferðarnámskeiðum, hafa aðstandendur verið hvattir til að taka þátt í meðferð ástvina sinna, koma í viðtöl, á fyrirlestra og taka þátt í hópmeðferð í tengslum við stofnanameðferð vímuefnafíklanna. Þetta er einkum áberandi í kvennameðferðinni, sjá ársskýrslu.
Líf í skugga meðvirkni - Viðtöl við Helgu G. Óskarsdóttir og Gísla Stefánsson.