SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Molar úr rannsókn Ara Matthíassonar

Senda á Facebook

 

56% kvenna en 13% karla sem leggjast inn á Vog hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. 56% kvenna og 48% karla úr hópi sjúklinga hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi.

 

Ómeðhöndlaður alkóhólisti notar heilbrigðisþjónustu tvöfalt meira en tíðkast hjá fólki af sama aldri og kyni. Munurinn hverfur eftir meðferð. Kostnaður heilbrigðiskerfisins vegna þessa er um 1,6 milljarður króna á ári.

 

Samkvæmt könnun Lýðheilsustöðvar frá árinu 2007, voru 13,5% íslenskra karla alkóhólistar, bæði virkir og óvirkir, en 5,8% kvenna. Til viðbótar var talið að vímuefnafíklar væru um 1% fólks 15 ára og eldra.

 

Fimmtungur fullorðinna Íslendinga, tæplega 40.000 manns, drekka sig í minnisleysi á hverju ári

 

31,8% íslenskra karlmanna og 13,3% kvenna drekka sig full einu sinni í mánuði.

 

11,6% karla og 2,2% kvenna fer á fyllerí einu sinni í viku.

 

11,4% karla og 2,9% kvenna fengu sér afréttara á árinu.

 

11,6% íslenskra karla og 3,3% kvenna teljast virk í skaðlegri drykkju, sem er skilgreind sem fimm drykkir eða meira einu sinni til tvisvar í viku.. Þetta eru 21.293 einstaklingar.

 

9,4% karla og 4% kvenna, 15 ára og eldri, hafa lagst inn á Vog í áfengis- og vímuefnameðferð.

 

1.354 manns innrituðust á Vog árið 2008. 58,2% þeirra höfðu verið ákærð fyrir ölvun við akstur.

 

Áfengissýki og vímuefnafíkn eru talin eiga hlut í 48% banaslysa í umferðinni og í 28% annarra umferðarslysum.

 

Árlegur kostnaður vegna umferðarslysa af völdum áfengissýki og vímuefnafíkar er metinn á 9.870 milljónir króna í ritgerð Ara Matthíassonar.

 

 

 

 

Ari Matthíasson, rannsakaði byrði íslensks þjóðfélags af áfengis- og vímuefnafíkn sem lokaverkefni til meistaragráðu í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands.

Ari Matthíasson starfaði áður sem framkvæmdastjóri félags- og útbreiðslusviðs SÁÁ, en er nú framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins, sjá viðtal.

 

70% fanga eru með áfengis- og vímuefnavanda. Þar af töldu 29% sig eiga við vímuefnavanda að stríða.

 

Það eru 0,585% líkur á að karl í áfengis- eða vímuefnavanda sitji í fangelsi. Hjá öðrum körlum eru líkurnar 0,036%. Hjá konum með áfengis- og vímuefnavanda voru líkurnar 0,133% en 0,003% hjá öðrum konum.

 

Þrír fjórðu af öllum föngum voru undir áhrifum þegar þeir frömdu afbrotið sem kom þeim í afplánun. 64% voru ölvaðir en hjá þriðjungi voru önnur efni í spilinu.

 

57% fanga höfðu farið í meðferð.

 

30% fanga afplána refsingu vegna fíkniefnabrota. 17% fanga var í daglegri neyslu áfengis eða vímuefna síðasta hálfa ár fyrir afplánun. 23% fanga sagðist hafa sprautað sig.

 

Talið er að 20% afbrotamanna brjóti af sér óháð neyslu en 80% brjóti af sér vegna drykkju eða vímuefnaneyslu.

Ári eftir að áfengismeðferð er lokið fremja brotamenn 80% færri afbrot. Handtökur eru 64% sjaldgæfari meðal þeirra en fyrir meðferð.

 

46,5% af allri vinnu lögreglu á tímabilinu sem rannsakað var mátti rekja til áfengis- og vímuefnaneyslu.

 

Neyslutengdur kostnaður við löggæslu er á bilinu 2-2,5 milljarðar króna á ári.

 

Sá kostnaður sem leggst á lögreglu, dómstóla og fangelsi landsins vegna áfengis- og vímuefnaneyslu liggur á bilinu 4.416 til 5.469 milljónir króna á ári.

 

70% af rekstrarkostnaði Barnaverndarstofu er vegna áfengis- og vímuefnasjúkra.

 

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.