
„Við erum að endurvekja fyrirbæri sem kallaðist ungt fólk í SÁÁ,“ segir Helena Hrund um UNG-SÁÁ sem heldur stofnfund sinn þriðjudaginn 13. september næstkomandi. „Það eru allir velkomnir til okkar annan þriðjudag í hverjum mánuði og mikilvægt að sem flest ungt fólk mæti.“
Félagsskapurinn hefur það að markmiði að standa vörð um hagsmuni ungs fólk sem vill lifa lífinu edrú. Á stofnfundinum, sem verður nánar auglýstur síðar (fylgist með á www.saa.is), verður mikið húllumhæ; tónlist og uppistand.
„Við kynnum starfið betur á fundinum en ráðgert er að fara í ferðir og ýmislegt annað skemmtilegt,“ segir Helena.
Facebook >
| HVAÐ: UNG-SÁÁ |
| HVAR: Von, Efstaleiti 7 |
| HVENÆR: Annar þriðjudagur í hverjum mánuði |
| FYRIR HVERN: Ungt fólk (yngra en 35 ára) |
|