SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Um umræðuna

 

Pólitískur vettvangur fyrir einstaklinga

 

Landsamtökin SÁÁ eru fyrst og fremst pólitískur vettvangur fyrir einstaklinga til að vinna að áfengis- og vímuefnavörnum. Það er því eðlilegt að skapa á þessu vefsetri vettvang fyrir umræðu um áfengis og vímuefnamál sem lætur sér ekkert óviðkomandi í þeim málum. Umræðu sem virðir öll sjónarmið og verður vonandi málefnaleg og skapandi. Umræðu sem leitar allra leiða til að leysa vandann og er opin fyrir öllum hugmyndum sem hafa að leiðarljósi að reyna að bæta ástandið. Umræðu sem forðast fordóma og heldur sig fremur við málefnin en menn. 

 

Í umræðunni geta allir tekið þátt bæði félagar og starfsmenn og aðrir landsmenn.

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.