SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Þurrir miðvikudagar

                                                  Amy Winehouse

í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti, kl. 20:30

Síðasta vetur héldum við svokallaða Þurra miðvikudaga í Von, eða Samtöl um alkóhólisma og hitt og þetta. Þessir fundir voru ótrúlega vel sóttir. Miðvikudaginn 7. september hófst dagskráin aftur. Samtölin á miðvikudagskvöldunum eru öllum opin, allir eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta. Og það kostar ekkert.

 

Þessi samtöl á miðvikudagskvöldum gerðu mikla lukku í fyrra. Þá var efnt til samtala um alkóhólisma og bókmenntir, offitu, Guð, uppeldi og margt fleira.

 

Fyrirkomulagið verður það sama í vetur. Fyrst munu tveir til þrír framsögumenn halda stutt erindi en síðan gefst gestum kostur á að blanda sér í samtalið. Reynslan í fyrra var sú að úr varð líflegt spjall um áhugaverð efni í góðum félagsskap. Markmið þessara samtala er ekki að komast að einni tiltekinni niðurstöðu heldur frekar að eiga raunveruleg mannleg samskipti utan Netheima; samskipti byggð á virkni og virðingu.

 

 

 Miðvikudagar í apríl 2012

25. apríl

Samtal um alkóhólsima og konur

Næstu fjögur miðvikudagskvöld verður Samtal um alkóhólisma og konur í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti 7. Samtölin byrja kl. 20:30 og verða búin kl. 22:00.

Fyrsta kvöldið, 25. apríl, mæta þær Sólveig Eíríksdóttir og Gunnhildur Bragadóttir og fleiri til að hefja samtal um reynslu kvenna af neylsu, meðferð og bata.

 

 

 

 Miðvikudagar í mars 2012

7. mars

Samtal um alkóhólsima og mannréttindi

Hvers vegna njóta áfengis- og vímuefnasjúklingar ekki sömu mannréttinda og aðrir sjúklingar? Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður og Björn M. Sigurjónsson, lögmaður, spjalla og svara spurningum kl 20:30 til 22:00.

 

21. mars

Samtal um alkóhólisma og mannfræði: Bakkus: Menning eða náttúra?

Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði, fjallar um mannfræðilegan samanburð á drykkjuvenjum og hlutverki þeirra í mismundandi samfélögum. Samtalið hefst 20:30 og lýkur kl. 22:00. Allir eru velkomnir

 

 

 Miðvikudagar í febrúar 2012

8. febrúar

Getur heimspeki gert þig heilbrigðan?

Vilhjálmur Árnason heimspekiprófessor ræðir um AA-stefnuna og skyldleika hennar við heimspekilegar hugmyndir. Samtalið hefst sem fyrr kl. 20:30 og verður slitið á slaginu 22:00. Allir eru hjartanlega velkomnir.

22. febrúar

Höfðu þeir sem ekki vildu afema bjórbannið rétt fyrir sér?

Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, fer yfir rök með og á móti afnámi bjórbanns og metur hvað hæft var í rökum fylgjenda eða andstæðinga bjórbannsins.

15. febrúar

Stjórnmál og áfengis- og vímuefnavandi

 Gunnar Smári Egilsson, fomaður SÁÁ, rekur hvernig baráttan við áfengis- og vímuefnavandann hefur blandast inn i stjórnmál gegnum tíðina. Samtalið  hefst 20:30 og lýkur kl. 22:00. Allir eru velkomnir.

 29. febrúar

Samtal um alkóhólisma og sjálfsmorð

Óttar Guðmundsson, læknir fjallar um áfengis- og vímuefnasýki og sjálfsmorð. Hversu algengt er að fólk sem fremur sjálfsmorð sé undir áhrifum? Hvenær er fólk í mestri hættu?

 

 

 Miðvikudagar í nóvember 2011

2. nóvember

Samtal um alkóhólisma og andleg málefni.

Anna Sigríður Pálsdóttir dómkirkjuprestur og Tolli Morthens listmálari vekja upp spurningar og hugmyndir um alkóhólisma og andleg mál á miðvikudagskvöldið 2. nóvember klukkan 20:30 í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti.

 

 

23. nóvember

Samtal um alkóhólisma í jólabókunum

Höfundar lesa kafla úr jólabókunum sem tengast ofdrykkju, alkóhólisma og fíkn og spjalla við gesti um birtingarmyndir áfengis- og vímuefnasýki í bókmenntum, listum og sögum. Guðmundur Andri Thorsson, Guðrún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur, Jakob Frímann Magnússon og Þórarinn Leifsson lesa.

 

 

16. nóvember

Samtal um alkóhólisma og ADHD hjá börnum

Ýr Sigurðardóttir, barnalæknir, og Lárus Blöndal, sálfræðingur, hefja samtalið og drepa á ýmsu sem snertir ADHD í börnum og áfengis- og vímuefnasýki.

Samtalið hefst klukkan 20:30 og lýkur klukkan 22:00. Allir eru hjartanlega velkomnir og það kostar ekkert inn. 

30. nóvember

Samtal um kostnað samfélagsins vegna áfengis og vímuefna

Ari Matthíasson kynnir sláandi niðurstöður meistaraprófsritgerðar sinnar um kostnað samfélagsins vegna áfengis- og vímuefnanotkunar, sem kynntar voru í síðasta SÁÁ-blaði.

 

 

  

 

  Miðvikudagar í október 2011

19. október

Samtal um alkóhólisma, föll og fordóma.

Þráinn Bertelsson heldur uppi samtali um alkóhólisma, föll og fordóma í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti 7, á miðvikudagskvöldið 19. október klukkan 20.30.

Þráinn mun lesa upp úr nýrri bók sinni, Fallið, og spjallar við gesti um glímu sína við alkóhólisma og fordóma sjálfs sín og samferðarmanna sinna.

 

 

 

26. október

Kvöldstund með Guðrúnu Ebbu

 Guðrún Ebba Ólafsdóttir les kafla úr bók sinni og Elínar Hirst, Ekki líta undan, og ræðir um efni hennar í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti 7, miðvikudaginn 26. október klukkan 20.30.

Á eftir inngangi Guðrúnar Ebbu gefst gestum tækifæri til að leggja til samtalsins eða spyrja Guðrúnu Ebbu. Allir eru hjartanlega velkomnir og það kostar ekkert

 

 

 

 

  Miðvikudagar í september 2011

7. september

Samtal um alkóhólisma og rokk & ról — 27 ára klúbburinn.

Þar munu Óttar Guðmundsson geðlæknir og dr. Gunni ræða um líf og örlög Brian Jones, Jimi Hendrix, Janis Joplin, Kurt Cobain og Amy Winehouse; hvaða áhrif hafði áfengis- og vímuefnaneysla á líf þeirra og list — og dauða.

 


14. september

Samtal um alkóhólisma og lyfjalausa meðferð.

 

Pétur Tyrfingsson sálfræðingur ræðir um hugræna

atferlismeðferð við þunglyndi, Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur mun fjalla um leið sína til bata án lyfja og Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, mun fjalla um áfengismeðferð og lyf.

  


21. september

Samtal um alkóhólisma, glæp og refsingu.

 

Erlendur Baldursson afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun, Þráinn Farestveit framkvæmdastjóri hjá Vernd og Tolli listmálari, koma og ræða um refsingar og meðferð, glæpavæðingu sjúkdómsins, rétt fanga á heilbrigðisþjónustu, dómlengd o.fl.

 

 

28. september

Samtal um alkóhólisma og ýmsar hliðar öldrunar

Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir og Sigurður Gunnsteinsson, dagskrárstjóri hefja samtalið og fjalla um ýmsar hliðar öldrunar, áfengisneyslu og ranga notkun lyfja. Gestum gefst síðan færi á að spyrja þá félaga eða leggja sín sjónarmið eða reynslu í umræðuna.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.