|
|
 |
Skáldagjöf ...
SÁÁ safnar nýjum félögum í allan vetur
Ekkert af þeim fjármunum sem SÁÁ fær frá ríki, borg eða sveitarfélögum fer til rekstrar félagsstarfsemi SÁÁ. Öll framlög renna óskert í þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandenda þeirra. SÁÁ fær því í raun engin framlög hvorki frá hinu opinbera; heldur kaupir ríki og borg tiltekna heilbrigðis- og félagsþjónustu af samtökunum. SÁÁ sker sig þannig frá öðrum sjúklingafélögum, sem flest njóta styrkja til almennra félagsstarfsemi og réttindabaráttu.
Félagsstarfsemi SÁÁ er alfarið rekin fyrir félagsgjöld og eigin tekjur samtakanna. Reyndar fer minnsti hluti teknanna til félagsstarfssemi því samtökin hafa í gegnum árin greitt um 1.500 milljónir króna með meðferðinni og sjúkrahúsaresktrinum. Í ár stefnir í að SÁÁ leggi um 160 milljónir króna upp í það gat sem takmörkuð framlög opinberra aðila skilja eftir. |
Réttindabaráttufélag áfengis- og vímuefnasjúklinga
Af þessum sökum er mjög mikilvægt að almenningur allur styðji við bakið á SÁÁ með því að greiða félags- og styrktargjöld til félagsins. Fólk getur valið um að greiða 500, 1.000 eða 1.500 krónur á mánuði. Með því styður fólk ekki SÁÁ einvörðungu með peningum heldur styrkir félagslega stöðu samtakanna. Það er mjög mikilvægt að innan SÁÁ sé breiður og öflugur hópur fólks sem lætur sig verkefni samtakanna varða.
SÁÁ er eina réttindabaráttufélag áfengis- og vímuefnasjúklinga og aðstandenda þeirra. Það er því mjög mikilvægt að sá hópur styðji samtökin og taki virkan þátt í starfsemi þeirra. Þótt margt hafi áunnist á umliðnum árum fer því fjarri að áfengis- og vímuefnasjúklingar njóti sömu réttinda og aðrir sjúklingar. Við þurfum enn að berjast við fordóma og að fá rétta greiningu og meðferð innan heilbrigðiskerfisins. Ef áfengis- og vímuefnasjúklingar sýna ekki samstöðu og baráttuvilja er hætta á að ávinningarnir tapist, baráttan staðni og afturför síðustu ára haldi áfram.
Í haust mun SÁÁ standa fyrir átaki til félagasöfnunar. Til að örva söfnunina leituðu samtökin til íslenskra ljóðskálda og báðu þau að gefa samtökunum eitt ljóð hvert. Ljóðin verða sett í bók, Skáldagjöf, sem gefin verður nýjum félögum seinna í haust. | |
|

Leitað var til 63 skálda á öllum aldri og 63 skáld féllust á að styðja samtökin. Í bókinni verða ljóð eftir eftirtalin skáld (í aldursröð): | |
Sverrir Norland, Kristín Svava Tómasdóttir, Jón Örn Loðmfjörð, Kristín Eiríksdóttir, Eiríkur Örn Norðdahl, Haukur Már Helgason, Sölvi Björn Sigurðsson, Guðrún Eva Mínervudóttir, Steinar Bragi, Andri Snær Magnason, Sigurbjörg Þrastardóttir, Ingunn Snædal, Gerður Kristný, Eiríkur Guðmundsson, Hermann Stefánsson, Kristján Þórður Hrafnsson, Hrafn Jökulsson, Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, Þórdís Gísladóttir, Didda, Jón Kalman Stefánsson, Bragi Ólafsson, Kristín Ómarsdóttir, Ólafur Jóhann Ólafsson, Sjón, Gyrðir Elíasson, Hallgrímur Helgason, Elísabet Jökulsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Ísak Harðason, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Anton Helgi Jónsson, Sigfús Bjartmarsson, Einar Már Guðmundsson, Þórunn Valdimarsdóttir, Magnea J. Matthíasdóttir, Vigdís Grímsdóttir, Birgir Svan Símonarson, Óskar Árni Óskarsson, Steinunn Sigurðardóttir, Þórarinn Eldjárn, Ólafur Gunnarsson, Sigurður Pálsson, Ólafur Haukur Símonarson, Pétur Gunnarsson, Einar Guðmundsson, Megas, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Böðvar Guðmundsson, Jóhann Hjálmarsson, Þorsteinn frá Hamri, Njörður P. Njarðvík, Ingimar Erlendur Sigurðsson, Guðbergur Bergsson, Hannes Pétursson, Matthías Johannessen, Vilborg Dagbjartsdóttir, Sigurður A. Magnússon og Kristján Karlsson.
SÁÁ þakkar skáldunum margfalt fyrir stuðninginn. | |
|
 |

Nora í 60 MINUTES
Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.
|