SÁÁ
19. ágúst 2010 / 08:47
Senda á Facebook

Áfengisblæti og rússneskt vodka

 

Staðreyndin virðist hins vegar vera sú að áfengisneysla hefur minnkað – og það ber ekki að lasta. Áfengisbölið leikur samfélagið miklu verr en fíkniefnin sem alltaf er verið að fárast yfir. Áfengisfíkn er margfalt útbreiddari en önnur eiturfíkn.

 

Egill Helgason skrifar um áfengisblæti á Íslandi og óhóflega vodkadrykkju í Rússlandi en Dimitri Medvedév ætlar að banna sölu á drykknum görótta milli 10 á kvöldin og 10 á morgnana.

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.