SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Mánudagsbíó

Á mánudagskvöldum er bíó í Von, Efstaleiti 7. Allar eru myndirnar tengdar áfengis- og vímuefnasýki en ráðgert er að sýna myndir frá öllum tímum, flestar bandarískar en líka japanskar, danskar, ástralskar og allt. Sumar fjalla um drykkjumenn, aðrar dópista og fæstar eru í bata heldur um fólk sem er að drepa sig og tortíma sínum nánustu.

 

Öll aðstaða í Von til fyrirmyndar og sýningar hefjast á spjalli sérfræðings um myndina. Stundum er lagt út frá höfundunum, stundum rætt um bakgrunn sögunnar (hvenær viðkomandi efni komu á markað, hvernig áfengis- eða vímuefnameðferð var í boði) og stundum hvað litar hugmyndir sögupersónanna. Eftir sýninguna er gestum síðan boðið að leggja orð í belg.

 

Fæstar af þessum myndum eru gerðar með meðferð eða bata í huga. Fólk ætti því ekki að líta á mánudagsbíó sem meðferð heldur sem brot úr sögu fíklanna í gegnum tíðina. Það er mikilvægt fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga að vera meðvitaðir um þessa sögu; hvernig aðgerðir stjórnvalda hafa aukið vanda þessa hóps, hvernig sjálfsmynd hópsins og hugmyndir um sjúkdóminn hafa breyst og að sjúkdómurinn á sér ekki síður þjóðfélags- og menningarlega hlið en læknisfræðilega eða persónulega.

 

 Mars 2012

21. mars

Midnight Cowboy >

Bandarísk 1969

Leikstjóri: John Schlesinger

Leikarar: Dustin Hoffman, Jon Voight, Sylvia Miles

Enskur texti

Sýnd kl. 21:00 í Von

 

 

 Febrúar 2012

6. febrúar

Svinalängorna>

Sænsk 2010

Leikstjóri: Pernilla August

Leikarar: Noomi Rapace, Ole Rapace, Outi Mäenpää

Sýnd kl. 21:00

 

13. febrúar

Submarino >

Dönsk, 2010

Leikstjóri: Thomas Vinterberg

Leikarar: G.F. Kjærulff, S.B. Sarning, M. B. Andersen

Sýnd kl. 21:00

 

 Nóvember 2011

7. nóvember

Lenny >

Bandarísk 1975

Leikstjóri: Bob Fosse

Leikarar: Dustin Hoffman, Valerie Perrine, Miner o.fl.

Sýnd kl. 21:00

 

21. nóvember

Requiem for a Dream >

Bandarísk 2000

Leikstjóri: Darren Aronofsky

Leikarar: Ellen Burstyn, Jared Leto og Jennifer Connelly

Sýnd kl. 21:00

14. nóvember

Crazy Heart >

Bandarísk 2009

Leikstjóri: Scott Dooper

Leikarar: Jeff Bridges, Maggie Gyllenhaal, C. Farrel ofl

Sýnd kl. 21:00

 

28. nóvember

Leaving Las Vegas >

Bandarísk 1995

Leikstjóri: Mike Figgis

Leikarar: Nicolas Cage , Elisabeth Shue ofl

Sýnd kl. 21:00

 

 

  Október 2011

3. október

Traffic >

Bandarísk 2000

Leikstjóri: Steven Soderberg

Leikarar: Douglas, Del Toro, Catherine Zeta Jones o.fl.

Sýnd kl. 21:00

10. október

The Verdict

Bandarísk 1982

Leikstjóri: Sidney Lumet

Leikarar: Paul Newman, C. Rampling og Jack Warden

Sýnd kl. 21:00

17. október

Let's get lost >

Bandarísk 1988

Leikstjóri: Bruce Weber

Leikarar: Chet Baker, William Claxton, Carol Baker ofl.

Sýnd kl. 21:00

31. október

Factotum >

Bandarísk 2005

Leistjóri: Bent Hammer

Leikarar: Matt Dillon, Lili Taylor, Marisa Tomei ofl.

S'ynd kl. 21:00

24. október

Candy >

Áströlsk 2006

Leikstjóri: Neil Armfield

Leikarar: Heath Ledger, Abbie Cornish, Geoffrey Rush

Sýnd kl. 21:00

.

.

.

.

.

.

 

  September 2011

5. september

The Lost Weekend >

Bandarísk, 1945

Leikstjóri: Billy Wilder

Leikarar: Ray Milland, Jane Wyman, Phillip Terry

Sýnd kl. 21:00

19. september

Pollock >

Bandarísk 2000

Leikstjóri: Ed Harris

Leikarar: Ed Harris, Marcia Gay Harden, Tom Bower

Sýnd kl. 21:00

12. september

Drugstore Cowboy >

Bandarísk 1989

Leikstjóri: Gus Van Sant

Leikarar: Matt Dillon, Kelly Lynch, James LeGros ofl

Sýnd kl. 21:00

26. september

Submarino >

Dönsk, 2010

Leikstjóri: Thomas Vinterberg

Leikarar: G.F. Kjærulff, S.B. Sarning, M. B. Andersen

Sýnd kl. 21:00

 

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.