SÁÁ

Kjarnakonur

 

Kjarnakonur SÁÁ eru hópur kvenna sem eru óvirkir alkóhólistar og aðstandendur alkóhólista. Kjarnakonur hittast vikulega, á miðvikudögum í Von Efstaleiti 7,  kl. 19:30 – 20:30.

 

Megin tilgangur með starfinu er að styðja við konur sem vilja fræðast um sjúkdóminn alkóhólisma og áhrif hans á fjölskylduna. Áhersla er lögð á að efla umræðu og vinna gegn fordómum með því að fræðast um alkóhólisma og ljá sjúkdómnum andlit. Sérstöl áhersla er lögð á bataleiðir. Skiptast konur á að deila reynslu sinni af því hvernig þær hafa náð bata frá alkóhólisma eða meðvirkni og hvernig þær viðhalda batanum.

 

Það von okkar að konur sem eru í Kvennameðferð tengist Kjarnakonum og taki þátt í að móta og efla starfið. 

 

Slagorð okkar er:

VIÐ STYÐJUM KONUR GEGN ÁFENGIS OG VÍMUEFNAVANDANUM.

VIÐ ÞORUM, VIÐ VILJUM OG VIÐ FRAMKVÆMUM.