SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Kjarnakonur Akureyri

 

6.janúar 2009 byrjuðum eins og vanalega að fara á Strikið og fá okkur að borða og forum síðan í Hofsbót.  Séra Hannes Blandon var með okkur í þetta sinn og sagði okkur skemmtilegar sögur og bennti okkur á leiðir til að slaka á í amstri dagsins. Það var enn og aftur mikið hlegið og forum glaðar konur heim í lok kvöldsins.

 

2.desember var jólafundurinn okkar.  Það var falleg stund sem við áttum saman. Í boði var  heitt súkkulaði, pönnsur , jólasmákökur og konfekt.  Þráinn Karlsson leikari kom og las fallega jólasögu fyrir okkur og Séra Sólveig Lára var líka með smá spjall.  Við sungum jólalag og í lokinni var kveikt á kveikt á kertum.  Þetta var svo sannarlega góð byrjun á desember.

 

4.nóvember þá var byrjað á að fá sér að borða því ekki megum við sleppa úr máltíð og fjölgaði svo þegar kom að fyrirlestri kl.21:00 í göngudeildinni og enduðum við í tölunni 31 (mér list ekki á þetta það fækkar alltaf við hvern fund, en stelpur bætum úr því)   Við fengum Grétu Kristjánsdóttur forvarnarfulltrúa Akureyrarbæjar með fyrirlestur um vináttu og forvarnir og spunnust hinar ýmsu umræður útfrá því.

 

7.október þá byrjuðum við á að borða saman og síðan bættist í hópinn þegar við mættum í göngudeildina og voru 39 konur samankomnar þar.  Fengum við Jónínu Freydísi Jóhannesdóttur til að halda fyrirlestur um vellíðan þannig að okkur líði öllum vel í vetur og var það mjög fróðlegt og núna tölum við allar við spegilinn á hverjum morgni. Það var mikið hlegið og forum við glaðar heim að lokinni þessari kvöldstund.

 

Þann 2.september 2008 komum við saman eftir sumarfrí og byrjuðum við á því að borða saman á veitingahúsinu Strikinu  (þær sem vildu) og var mjög góð þátttaka.  Síðan forum við í göngudeildina í Hofsbót og þar fór fram kynning á því sem við ætlum að gera í vetur, og voru 42 konur samankomnar á þessari yndislegu stund.  ÁSi ráðgjafi var kvaddur og við tókum á móti Önnu Hildi sem kom í staðinn fyrir hann. 

 

1. april 2008 þá var breytt útaf venjunni og borðað á Strikinu því nú hittumst við í fyrsta skiptið á nýja staðnum okkar við Hofsbót. Nú var umræðuefnið vinátta og Séra Sólveig Halla hélt fyrirlsetur fyrir okkur um það efni og var mikið hlegið og mikið gaman, Síðan var límdur pappadiskur aftan á allar konurnar og áttum við að skrifa eitthvað fallegt hrós um viðkomandi konu á diskinn og það fuku mikið af fallegum orðum þetta kvöldið og var mikið hlegið og skemmt sér.

 

17. mars 2008 þá var opnuð ný og glæsileg göngudeild hér á Akureyri í Hofsbót 4, og ekki létum við okkur vanta þar og hituðum kaffi og smurðum flatbraut ofan í mannskapinn og sáum um að til væri nóg af kaffi og með öllu brauðinu sem þarna var í boði. Við vorum bara ánægðar með okkur að við gætum aðstoðað okkar indæla Ása ráðgjafa við að undirbúa þetta.

 

4.mars 2008 þá hittumst við Kjarnakonur eins og venjulega fyrsta þriðjudag í mánuði og byrjuðum á að fá okkur að borða á Greifanum eins og vanalega og var það jafnframt í síðasta skipti sem við fórum þangað því þetta var jafnfram í síðasta skipti sem við hittumst í göngudeildinni í Glerárgötu. Við fengum Sögu Jónsdóttur leikkonu til að spjalla um sjálfstyrkingu og gerði hún það mjög vel, og fékk hún okkur til að gera ýmislegt sem okkur hafði ekki órað fyrir að við ættum eftir að gera. Hún skipti okkur niður í hópa og átti hver kona að velja sér einn hlut sem hún mætti með og þegar allar voru komnar með hlut þá áttum við að búa til sögu eða leikrit um þá hluti sem voru innan hópsins og þá fór nú að fara um mannskapinn. En þegar byrjað var að sýna afraksturinn þá var þetta bara verulega flott hjá okkur og kom í ljós að við erum hinir mestu listamenn.

 

Kjarnakonur SÁÁ   Akureyri 3. maí 2005 Stássið 

Þriðjudaginn 3. maí mættu 18 hressar kjarnakonur og eitt lukkutröll á Stássið á Greifanum til að hlusta á Halldóru Ásgeirsdóttur kjarnakona halda fyrirlestur um kvennameðferð og eftirfylgni. Agnes Bryndís kjarnakona setti fundinn og byrjuðu konur á að kynna sig, hún sagði frá því að í tilefni af því að kjarnakonur SÁÁ í Rvík urðu 3. ára 19 apríl sendum við þeim blómvönd og komu þakkir frá þeim, einnig sagði hún frá því að kjarnakonur Rvík hafa ákveðið að fara að Reykjum í Hrútafirði helgina 27-29 maí n.k. og vilja að verðum með, Jonna kjarnakona ætlar að vera tengiliður okkar og sjá um að miðla upplýsingum ofl. Einnig sagði hún frá því að næst er áætlað að hittast í byrjun júní á Stássinu en í júlí og ágúst áætluðum við að hittast í hádeginu og fá okkur súpu saman.

Fyrirlesturinn  tókst mjög vel hjá Halldóru og voru miklar umræður á eftir og var gott að hafa Hörð ráðgjafa með okkur til að svara hinu ýmsu spurningum og fleiri konur deildu reynslu sinni af kvennameðferð. Að venju fengum við okkur að borða og ekki skorti umræðuefnin. Fundi var svo slitið um 2200 og konur voru konur kátar með velheppnaðan fund.

 

Kjarnakonur SÁÁ   Akureyri 29. mars 2005 Stássið 

Þriðjudaginn 29. mars 2005 mætti Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri á Vogi með fyrirlesturinn Konur-áfengi-slökun fyrir Kjarnakonur SÁÁ á Akureyri, og einnig kom með henni Lára Kjarnakona út Reykjavík. Mættar voru 24 konur og Hörður ráðgjafi sem fær að vera með okkur og virkja sín kvenlegu gen! A. Bryndís setti fundinn bauð konur og gesti velkoma og kynnti Þóru og Láru, byrjað var á að panta sér mat og meðan við biðum eftir hnum þá byrjaði Þóra erindi sitt. Kynnti starf kjarnakvenna í Rvík sem er mikið og fjölbreytt. Svo fjallaði hún um áfengisneyslu kvenna, næst tóku konur til matar sins og spjölluðu. Síðan var Þóra með síðari hluta fyrirlestursins um slökun og Lára fór í stuttu máli með sögu sína. Eftir frábæra kvöldstund var fundi slitið um kl 2200.

 

Kjarnakonur SÁÁ   Akureyri 28. febrúar 2005 Stássið 

Mánudaginn 28. febrúar 2005 hittust kjarnakonur SÁÁ Ak í fyrsta skipti á árinu 2005.  Ákveðið hefur verið að hittast einu sinni í mánuði á þessu ári (en oftar ef eitthvað sérstakt kemur uppá. Við byrjuðum  á að hlusta á fyrirlestur með Þórarinni Tyrfingssyni um árið 2004 hjá SÁÁ og hvað væri framundan, frábært að hlusta á hann eins og alltaf. Eftir fyrirlesturinn borðaði hann og Hörður með okkur. Líflegar umræður voru eins og venjulega og voru þær 14 konur sem mættu kátar með kvöldið.  Ákveðið hefur verið að hittast næst þriðjudaginn 29. mars og þá ætlar Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri á Vogi að halda fyrirlestur um slökun.

 

Kjarnakonur SÁÁ   Akureyri 7. desember 2004 Stássið 

Þriðjudagskvöldið 7. desember 2004 hittust 17 hressar konur á stássinu, Bryndis setti fundinn og talaði meðal annars um hve glaðar við erum með hvað vel hefur til tekist með kjarnakonur Akureyri. Síðan sagði hún frá því að séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir yrði með smá erindi en nú skyldu konur taka til við að panta mat og snæða.  Yfir matnum fóru líflegar og skemmtilegar umræður af stað meðal annars um jólahald ofl.

Jóna Lísa talaði svo þegar konur voru búnar að snæða og minnti okkur á um hvað jólahelgin snýst og minnti okkur á að ekki hafa allir það jafn gott yfir jólin. Síðan var formlegum fundi slitið en flestar konur fengju sér kaffi og spjölluðu. Einn heiðursmaður kom í smá heimsókn og var honum vel tekið. Um kl 2210 fóru konur svo að tínast í burtu ánægðar með vel heppnað kjarnakonukvöld.

 

Kjarnakonur SÁÁ   Akureyri 23. nóvember 2004 Sal SÁÁ 

Þriðjudaginn 23. nóvember kl 20 mættu 13 kjarnakonur í sal SÁÁ Glerárgötu þar sem Herborg kjarnakona var með kynningu á bútasaumi og bútasaumsvörum,  og í framhaldi af þessari kynningu er kjarnakonum boðið að koma í búðina þar sem þessar vörur eru seldar og fá sýnikennslu á hvernig farið er að búa þetta til. Ýmsar kjarnakonur á fundinum höfðu uppi efasemdir um eigið ágæti til að búa til svona fínt, en var snarlega sagt að þetta væri lítið mál, eins og alltaf er nátturlega sagt! Einn heiðursmaður kíkti í heimsókn og var honum svo vel fagnað að hann sagðist myndi sækja í að kíkja á okkur. Síðan var Jonna kjarnakona með kynningu á hugmyndum um hönnun á nýstárlegum jólakortum og svo fengum við okkur kaffi og piparkökur. Næst hittumst við í Stássinu 7. desember og þar ætlar Séra Jóna Lísa að vera með eh jóla-jóla fyrir okkur.

 

Kjarnakonur SÁÁ Akureyri fyrirlestur Hörður J Odd 2. nóv 2004 Stássið 

Þriðjudaginn 2. nóvember kl 20 hittust 15 kjarnakonur og einn heiðursmaður á Stássinu, byrjað var á að panta sér mat og koma sér vel fyrir. A. Bryndís kjarnakona setti fundinn bauð konur og mann velkomin og sagði frá ferð sem Kjarnakonur í Reykjavík stefna á að fara í vor til Kanarí, og vilja að þær kjarnakonur á Akeyri  sem áhuga hafa komi með, einnig sagði hún frá að fyrirhuguð væri stofnun kjarnakvenna SÁÁ í Vestmannaeyjum..

Að loknum snæðingi hélt ráðgjafi SÁÁ Ak  Hörður J Odd. erindi fyrir okkur og sló svo í gegn, að heyrst hefur að hlátrasköllin hafi verið svo mikil að vegfærendur hefðu haldið að þarna sætu konur að sumbli en ekki bláedrú kjarnakonur!! Fundi var slitið 21.30. og næsti fundur áætlaður 23. nóv.

 

Kjarnakonur SÁÁ Akureyri undirrfatakynning Sal SÁÁ 5. október 2004 

Þriðjudagskvöldið 5. október  var kjarnakonan Agnes Bryndís J. með undirfatakynningu í sal SÁÁ Glerárgötu.. 8 hressar konur mættu (enn voru nefnilega veðurguðirnir með leiðindi fyrsti snjór vetrarsins kom þennan dag og mikil hálka á götum, og konur ætla seint að læra að þetta eru akkurat aðstæðurnar til að vera á ferðinni þ.e. vilji þær athygli, því hjálparvana kona á bíl í þessum aðstæðum dregur að sér alla karlmenn í margra kílómetra radíus) kynningin tókst vel mikið hlegið og mikið gaman, og ljóst er að allavega sumir norðlenskir karlmenn ættu að vera í góðum málum þ.e. sé þeim eitthvað gott gerandi.

 

Kjarnakonur SÁÁ Akureyri grill í Kjarnaskógi 16. september  2004 

Fimmtudaginn 16. september grilluðu kjarnakonur SÁÁ á Akureyri í Kjarnaskógi eitthvað fór þetta í taugarnar á veðurguðunum því þennan dag ringdi eldi og brennisteini yfir höfuðstað Norðurlands (sem nátturlega er mjög sérstakt þar sem allir vita að þar er alltaf  gott veður, logn og blíða), og þó veður hafi skánað er leið á voru það aðeins harðsvíruð hörkutól sem mættu á staðinn sem skemmtu sér nátturlega hið besta.

 

Miðvikudaginn 30. ágúst
Sem sagt, miðvikudaginn 30. ágúst klukkan 19:30, hittust Kjarnakonur á Stássi Greifans og var frábær mæting. Valgerður Rúnarsdóttir læknir var með okkur og fræddi okkur um hinar ýmsu hliðar þess að vera edrú. Kjarnakonur fengu sér að borða, nammi-nammi-namm, frábær þjónusta hjá Greifakonum sem þeyttust í kringum okkur og létu okkur ekkert vanta. Góð stemming var meðal Kjarnakvenna, nokkrar nýjar mættu og það er alveg frábært hvað okkur fjölgar ört. Augljóslega mikil kvennagleði á Akureyri. Næst á dagskrá Kjarnakvenna SÁÁ á Akureyri er grill í Kjarnaskógi, 16. september, og þar verður glatt á hjalla þegar Kjarnakonur mæta ásamt fjölskyldum sínum, grilla og njóta samverunnar.

Þar til næst, elskurnar mínar........
 
Miðvikudaginn 4. ágúst
Hittust 15 frábærar Norðlenskar Kjarnakonur  SÁÁ á Veitingahúsi Peng's og fengu allar konurnar sér að snæða   af frábæru hádegishlaðborði á meðan sellurnar voru að vakna til vitundar. Þegar snæðingi var lokið kom í ljós að hugmyndaskálarnar höfðu verið vel notaðar og freyddi vel í mörgum hverjum. Hugmyndatunnan var látin ganga og þegar ausið hafði verið yfir í hana kom í ljós að margt góðra hugmynda um dagskrá vetrarins var þar að finna. Má nefna sem dæmi kynningar af ýmsu tagi, allt frá meðvirkni   yfir í heilsusamlegt líferni og frá jóga yfir í bútasaum, förðun og hárgreiðslu . Ótrúlega margar skemmtilegar, nýtilegar og óvenjulegar hugmyndir voru settar í hugmyndatunnuna. Áttum frábæra stund saman við skraf og hlátur.

Ákveðið var að skoða möguleika á sameiginlegri kvöldstund í september,  í sveitasælu einhversstaðar í nágrenninu og verður það kynnt nánar síðar. Fengum óvænta og gleðilega heimsókn á fundinn. Hörður ráðgjafi SÁÁ og okkar norðankvenna og manna leit inn og var gott að fá frá honum velgengnisóskirnar. Eins og fram hefur komið er næsti fundur Kjarnakvenna SÁÁ á Akureyri, mánudaginn 30. ágúst klukkan (ca) 19:30, í Stássi Greifans.

Þangað til næst........
 
Miðvikudaginn 7. júlí
La Vita e'Bella   varð þess heiðurs aðnjótandi í gær, miðvikudaginn 7.júlí 2004, að 21 Kjarnakona   mætti til að njóta tilverunnar, samvistanna hver við aðra og að maður nú ekki tali um súpunnar og salatsins sem í boði var. Tvær kvennanna komu alla leið frá Sauðárkróki, tæplega 120 kílómetra leið, til að geta verið með. Gleði sveif yfir súpudiskunum og konurnar voru allar skemmtilega jákvæðar og ákafar í að njóta lífsins, edrú. Sköpunar- og hugmyndaheilasellurnar voru gangsettar og verða eflaust einhverjar þeirra ofvirkar fram að næsta fundi þegar setja á á blað humyndir um dagskrá Kjarnakvenna í vetur.

Jonna Kjarnakona kom með tillögu (skissu) að merki Kjarnakvennadeildar SÁÁ á Akureyri, frábær útsetning á lífsins tré, og var samþykkt einróma að Jonna fullgeri myndina.

Næsti fundur verður miðvikudaginn 4. ágúst og mun ég láta vita af staðsetningu þegar nær líður.

Endilega haldið áfram að láta orðið berast til allra kvenna sem þið haldið að gætu haft gaman af heilbrigðum og skemmtilegum félagsskap. Og eru það nú ekki allflestar konur???
 
VIÐ STYÐJUM KONUR GEGN ÁFENGIS OG VÍMUEFNAVANDANUM.
VIÐ ÞORUM, VIÐ VILJUM OG VIÐ FRAMKVÆMUM
VIÐ ERUM KJARNAKONUR SÁÁ

Guðný B. Höskuldsdóttir
GSM: 8671214
Netfang: gudnybh3012@simnet.is
 

 

Kjarnakonur Akureyri

 
Þriðjudaginn 15. júní, klukkan 18:00 hittust 17 kjarnakonur í sal SÁÁ, Akureyri. Allar eru konurnar viljugar og fullar tilhlökkunar að taka þátt í starfi Kjarnakvenna. Við byrjuðum á að fá okkur kaffibolla, svona um leið og við týndumst inn. Þá kynntum við okkur og kom í ljós að í hópnum voru aðstandendur alkóhólista, fullorðin börn alkóhólista, vinir alkóhólista og alkóhólistar, nákvæmlega eins og það á að vera.
 
Skrafað var og skeggrætt, hvernig viljum við hafa þetta, hvað viljum við gera og svo framvegis. Ákvörðun var tekin um að í sumar, þ.e.a.s. í júlí og ágúst munum við hittast einu sinni í hvorum mánuði og fá okkur súpu saman í hádeginu, svona til að hrista saman hópinn og hafa þetta frjálslegt og fínt. Fyrri súpudagur verður miðvikudaginn 7. júlí klukkan 12:00 en seinni súpudagur er svo miðvikudaginn eftir Verslunarmannahelgi, 4. ágúst klukkan 12:00 og enn á eftir að ákveða staðsetningu.

Hugmynd kom upp á fundinum um að fyrstu eða aðra helgina í september gætum við komið saman. Þá gætum við sett saman grunn að vetrardagskránni okkar, ásamt því auðvitað að grilla góðan mat og snæða. Ákvörðun um þennan septemberfund þurfum við að taka á súpufundunum okkar.

Til að byrja með munum við Hrefna verða "tengiliðir" fyrir Kjarnakonur á Akureyri og reynum að halda utan um hópinn. Hrefna er með GSM símann 846 7359 og netfang: hrehel@rarik.is en ég er með GSM símann 867 1214 og netfang: gudnybh3012@simnet.is
 
Kveðja og knús til ykkar allra.
VIÐ ÞORUM, VIÐ VILJUM, VIÐ FRAMKVÆMUM.
 
 
 
Guðný B. Höskuldsdóttir
GSM: 867 1214
Netfang: gudnybh3012@simnet.is 
 
 
 
 
 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.