SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Hollt í hádeginu

Líkamleg, félagsleg og andleg næring 

Í hádeginu á þriðjudögum verður boðið upp léttan og hollan málsverð í Von, húsi SÁÁ í Efstaleiti 7, og léttan og hollan fyrirlestur um ýmsar hliðar á fíkn og bata við fíknisjúkdómum: Hollur og góður félagsskapur.

 

Í september bjóðum við upp á mat frá hollustumatstaðnum Happ. Gestir setjast saman við langborð og því óhætt fyrir fólk að koma einsamalt. Þegar maturinn hefur verið reiddur fram, kl. 12.10, hlýðum við á stuttan fyrirlestur og að honum loknum mun fyrirlesarinn spjalla við gesti og svara fyrirspurnum.

 

Spjallinu lýkur klukkan 13 og þá getur fólk haldið út í lífið endurnært á líkama og sál.

 

 

 

 

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.