SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Gallagripir

.. til bjargar týndu kynslóðinni

Alla þriðjudaga kl. 16.15 munu nokkrir gallagripir bjóða ungu fólki til skrafs og ráðgerðar í Vonarhúsinu að Efstaleiti 7. Borgarstjórinn og gallagripurinn Jón Gnarr ríður á vaðið þriðjudaginn 13. september og svo koma þeir koll af kolli þessir drengir allir saman.

 

Þótt strákarnir, sem eitt sinn þóttu meingallaðir, ríði á vaðið þá eru bæði stelpur og strákar sem átt hafa í vandræðum vegna áfengis- og vímefnaneyslu hvött til að mæta. Þetta er fyrir alla og þegar talið berst að stelpunum segir Bubbi Morthens að þær séu oft ekki jafn gallaðar og strákarnir hlæja flestir en Jón Gnarr bætir því við að þær stæri sig heldur ekki eins mikið af öllu ruglinu. Strákar eru líka oft fyrirferðamiklir og í dag er það þannig að fleiri strákar virðast utanveltu í kerfinu og tolla illa í skóla og eru lengur atvinnulausir en stelpurnar.

Þetta ræddu gallagripirnir þegar þeir mættu í Von til að láta taka þessa mynd af sér. Margir voru að hittast í fyrsta sinn í lengri tíma og Stefán Máni var þarna með krakkana sína sem Bubbi heillaði upp úr skónum og Tolli og Guðmundur Oddur (sem var að koma frá Seyðisfirði) festust á samræðum um listina.

 

Svo sögðu menn sögur af því hvað það var erfitt að hætta að reykja og horfðu á Einar Örn vefja sér sígarettu. En það allt skiptir ekki máli því allir þessir menn hafa reynslu af því að hafa ekki verið eins og fólk er flest og tekist að líta á það sem kost fremur en galla.

Tolli Morthens, Guðmundur Oddur, Jón Gnarr, Einar Örn, Stefán Máni, Sigurjón M. Egilsson, Bubbi Morthens, Mikael Torfason, KK

 

Gallagripir eru í Von, Efstaleiti 7, alla þriðjudaga kl. 16:15 (einn og hálfur tími) fyrir ungt fólk.

 

 

 

.

 

. Gallagripir eru...

Nafn: Tolli Morthens

Aldur: 57

Starf: Listamaður

Fyrri störf: Sjómaður, verkamaður, Skógarhöggsmaður

Menntun: Myndlistarskóli Íslands, Berlínarháskóli

Nafn: Jón Gnarr

Aldur: 44

Starf: Borgarstjóri

Fyrri störf: Verkamaður og grínisti

Menntun: Prófessor í Ekkert frá Háskólanum í hvergi (University of Nowhere)

Nafn: Stefán Máni

Aldur: 41

Starf: Rithöfundur

Fyrri störf: Fiskverkun, byggingarvinna, bókband og sambýli fyrir geðveika

Menntun: Klára samræmdu prófin en flosna upp úr námi á fyrsta ári í menntaskóla

Nafn: Bubbi Morthens

Aldur: 55 ára

Starf: Laga- og textasmiður, söngvari, rithöfundur

Fyrri störf: Verkamaður og sjómaður

Menntun: Hætti í skóla 15 ára

Nafn: KK

Aldur: 55 ára

Starf: Tónlistarmaður

Fyrri störf: Verkamaður, uppskipun, skúringar

Menntun: Pungapróf

Nafn: Guðmundur Oddur Magnússon

Aldur: 56 ára

Starf: Prófessor við Listaháskóla Íslands

Fyrri störf: Gröfumaður Bröyt X2b

Menntun: Drop-out úr menntaskóla, rekinn úr Myndlistar- og handíðaskóla Íslands, Diploma-próf í grafískri hönnun eftir meðferð

Nafn: Einar Örn

Aldur: 48 ára (held ég)

Starf: Borgarfulltrúi, tónlistarmaður, frumkvöðull

Fyrri störf: Póstbifreiðastjóri, bardyravörður, barþjónn, blaðamaður, verslunarmaður

Menntun: Stúdentspróf, BA í fjölmiðlafræði

Nafn: Sigurjón M. Egilsson

Aldur: 57 ára

Starf: Blaðamaður og útgefandi

Fyrri störf: Sjómaður og sölumaður

Menntun: Gagnfræðingur

Nafn: Mikael Torfason

Aldur: 37 ára

Starf: Rithöfundur og blaðamaður

Fyrri störf: Verkamaður og kjúklingaslátrari

Menntun: Féll á samræmdu prófunum

Alla þriðjudaga kl. 16.15 -  til skrafs og ráðgerða í Vonarhúsinu.

 

 

 .

 

      

  

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.