SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Félagsvist og dans

 HVAÐ: Dans

 HVAR: Von, Efstaleiti 7

 HVENÆR: Annan hvern laugardag kl. 22.:30

 FYRIR HVERN: Allir velkomnir

 NÁNAR: www.saa.is

 HVAÐ: Danskennsla

 HVAR: Dansskóli Auðar Haralds (Haukahúsinu, Hfj.)

 HVENÆR: Fimmtudaga kl. 19:30 - hefst 15. september, skráning 8616522 (Auður)  og 6167944 (Lilja)

 FYRIR HVERN: Allir velkomnir

 NÁNAR: www.saa.is

 HVAÐ: Félagsvist

 HVAR: Von, Efstaleiti 7

 HVENÆR: Annan hvern laugardag kl. 20:00 (sama kvöld og dansinn)

 FYRIR HVERN: Allir velkomnir

 NÁNAR: www.saa.is

 

Lilja Sveinsdóttir og Haukur Jónsson
Gift í 47 ár

 „Við byrjuðum að dansa hjá SÁÁ fyrir 19 árum,“ segir Haukur Jónsson, kokkur hjá Landhelgisgæslunni, en hann kona hans, Lilja Sveinsdóttir afgreiðslukona, mæta alltaf í dansinn, annan hvern laugardag, en þá er ball í Von, Efstaleiti 7.

 

Og það er félagsvist á undan ballinu er það ekki?

„Jú,“ segir Lilja sem fær kallinn ekki til að spila við sig en hún er hinsvegar fastagestur í félagsvistinni líka. „Það er mjög skemmtilegt að spila fyrst og fara svo í dansinn. Við höfum verið að spila á 12-20 borðum og það eru allir velkomnir.“

 

Það kostar fimmtán hundruð inn á ball og félagsvistina (vistin hefst kl. 20 og ballið 22.30 – hljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi) og á staðnum eru seldar vöfflur og kaffi. Lilju og Hauki finnst mikilvægt að það komi fram að dansinn hjálpi mikið bæði sem forvörn og bati.

 

„Svo er SÁÁ líka með dansnámskeið,“ útskýrir Haukur en það er hjá Auði Haralds í Haukahúsinu í Hafnarfirði og hefst það 15. september. Það er fimmtudagur og eru námskeiðin frá 19:30, tíu tímar á tíu þúsund krónur.

 

En af hverju eruði svona hamingjusöm, voruði að byrja saman?

„Nei,“ hlæja þau Haukur og Lilja sem giftu sig fyrir 47 árum. Þau eiga fjögur börn og sjö barnabörn.

 

Hvernig fariði að þessu?

„Við verðum bara að halda námskeið,“ segir Haukur kíminn.

 

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.