
Fyrir þig sem ert á leiðinni til meðferðar á Vogi er mikilvægt að hafa nokkur atriði í huga
Landslög kveða svo á um að allar sjúkrastofnanir landsins skulu vera reyklausar og þar er Vogur engin undantekning. Þess vegna er búið að útbúa skýli utandyra fyrir þá sjúklinga Vogs sem reykja. Hafa skal í huga oft verða veturnir kaldir á Íslandi og því gott að hafa meðferðis hlý nærföt til að klæðast innan undir náttfötin sem sjúklingum okkar er skylt að vera í.
Einnig skal tekið fram að gefnu tilefni að samkvæmt reglum Vogs er ekki leyfilegt að koma með eða fá senda bangsa eða önnur leikföng og ekki er æskilegt að mæta með GSM síma eða útvarp.
Nauðsynlegt er fyrir sjúklinga að hafa eftirfarandi gátlista í huga við undirbúning komu á Vog:
- náttföt til skiptana og náttslopp
- nærföt og sokka
- ullarnærföt til að nota innan undir náttföt
- inniskó
- snyrtidót
- pening fyrir símakorti og/eða sælgæti
- sígarettur
- bækur eða annað lesefni
- lyf-lyfjakort