SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Dagskrá göngudeildar í Reykjavík

Efstaleiti 7, 103 Reykjavík. Sími: 530-7600.

Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00-17:00 og föstudaga kl. 09:00-16:00 (lokað í hádeginu)

Ráðgjafi á vakt tekur á móti fólki í viðtöl frá kl. 09:00 alla daga. Dagskrárstjóri er Hörður J. Oddfríðarson

 

Áfengis og vímuefnaneysla hefur verið vaxandi þjóðfélagsvandi síðustu áratugi. Á Vesturlöndum hefur ástandið einkum versnað eftir að ólöglegur vímuefnafaraldur geysaði meðal ungs fólks á sjöunda áratug síðustu aldar. Þrátt fyrir góðan vilja og miklar mótaðgerðir hefur ekki tekist að draga úr þessum vanda. Þegar á heildina er litið hefur áfengis- og vímuefnavandinn aukist jafnt og þétt. Þessi vandi er ekki aðeins gríðarlegur að vöxtum heldur einnig flókinn og margbreytilegur. Hann birtist okkur í fjölmörgum myndum eins og slysum, sjúkdómum, afbrotum, fjölskylduvandamálum og persónulegri óhamingju. Sjúkdómur áfengis- og vímuefnafíknar sem fengist er við á sjúkrastofnunum SÁÁ er einn hluti þessa mikla vanda

Lesið um þjónustu göngudeildar SÁÁ í Von (sjá einnig úrræði og fundir í Von Efstaleiti)

 

Viðtöl

Ráðgjafi á vakt tekur á móti fólki í viðtöl frá kl. 09:00 alla virka daga. Hægt er að koma án fyrirvara í viðtal eða samkvæmt nánara samkomulagi.

 

Eftirfylgni

Kvennahópar I hittast á mánudögum og fimmtudögum kl. 16:00 – 17:00 eða 10:00 – 11:00 (3 mán)

Kvennahópar II hittast á miðvikudögum kl. 16:00 – 17:00 eða 10:00 – 11:00 (9 mán)

Heldri menn hittast á þriðjudögum kl. 11:00 – 12:00 (ótímabundið)

Staðarfellshópur kemur saman á miðvikudögum kl. 17:00 – 18:00 (12 vikur)

Stuðningshópur aðstandenda hittist einu sinni í viku í kjölfar hverrar fjölskyldumeðferðar.

 

Meðferðarhópar *

Meðferðarhópur I kemur saman mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00 – 12:00 eða 18:00 til 21:00. (4 vikur)

Meðferðarhópur II kemur saman á þriðjudögum kl. 09:00 – 11:00 eða 17:00 – 19:00 (12. vikur)

Unglingahópar hittast á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00 –19:00 (ótímabundið)

Daglegur stuðningshópur er á dagskrá alla virka daga kl. 11:00 – 12:00 (3 vikur) Tekið er á móti nýjum einstaklingum í hópinn ½ klst fyrir fund.

Fjölskyldumeðferð er á dagskrá á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 – 20:00 (4 vikur)

Alla fimmtudaga kl. 18:00 er haldinn kynningarfundur SÁÁ

 

Að auki er boðið upp á eftirfarandi úrræði um helgar og eru þau auglýst sérstaklega.

1. Bati og ófullkominn bati - fræðsla um batann fyrir alkóhólista/fíkla

2. Fjölskyldumeðferð – úrdráttur fyrir einstaklinga sem búa utan Reykjavíkur

3. Meðferð fyrir spilafíkla

 

*  M- hópur . Endurhæfing á göngudeild

Flestir stjórnmálamenn á Vesturlöndum eru sammála um að nauðsynlegt sé að draga úr sjálfvirkri hækkun útgjalda til heilbrigðismála. Í kjölfar þess hefur orðið mikil umræða hér á landi um rekstur sjúkrahúsa og sjúkrastofnanna, sem sumstaðar hefur leitt til breytinga á rekstrarfyrirkomulaginu.

Aðalbreytingarnar sem orðið hafa eru þær að fólk sem áður fékk þjónustu á stofnunum fær nú þjónustuna á göngudeildum.

 

Til að mæta aukinni meðferðarþörf með sem minnstum kostnaði, var komið á fót göngudeildarmeðferð hjá SÁÁ 1996, sem ætlað er að koma í staðin fyrir hefðbundna endurhæfingarmeðferð á Staðarfelli eða Vík. Í þessari meðferð mætir fólk 4 kvöld í viku fyrsta mánuðinn en síðan einu sinni í viku í tólf skipti. Meðferðin tekur því í allt um 4 mánuði.

 

Í hverjum meðferðartíma er fyrirlestur, verkefnatími og hópmeðferð. Slík meðferð hentar vel þeim sem búa á Reykjarvíkursvæðinu, eru eldri en 25 ára og hafa nægilega góðar aðstæður og líkamlega heilsu. Þeir

fara nú í göngudeild að lokinni stuttri dvöl á Vogi í stað þess að dvelja inniliggjandi meðferð í fjórar vikur á Staðarfelli eða á Vík. Við þetta losna meðferðarrými á Staðarfelli og Vík. Alls nýttu 143 einstaklingar sér þessa meðferð árið 1996. Þessi meðferð lofar mjög góðu fyrir þá sem geta nýtt sér hana. Brottfall er þó mun meira en á Staðarfelli og Vík eða 17% í fyrstu vikunni.

 

Rétt er einnig að hafa í huga að sjúklingum geta nægt viðtöl og hópmeðferð á göngudeild án þess að þurfa að fara á sjúkrahúsið Vog, einkum af þeir hafa verið í meðferð áður. Hundruð skjólstæðinga SÁÁ nýttu sér þetta á hverju ári. Göngudeildarstarfið hjá SÁÁ sparaði með þessum mörgum skjólstæðingnum fyrirhöfn og þjóðfélaginu mikla fjármuni.

 

Göngudeildarþjónusta getur því stundum komið í stað meðferðar þar sem dvalist er á stofnunum. Miklu oftar kemur þó göngudeildarþjónusta ein ekki til greina vegna félagslegra aðstæðna eða veikinda sjúklingsins. En þá er göngudeildin nauðsynleg til að auka árangur að lokinni stofnanameðferð.

 

Hringið í síma 530 7600 og fáið frekari upplýsingar.

 

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.